Borg fasteignasala og Einar Pálsson lgf. kynna glæsilegt og bjart einbýlishús að Sléttahrauni 16, fallegt fjölskylduhús miðsvæðis í Hafnarfirði. Húsið er samtals 232,6 m2 og er á pöllum. Eignin hefur tvennar svalir, forstofu, rúmgóðar stofur, þrjú svefnherbergi og stórt herbergi í kjallara með snyrtingu ásamt þvottahúsi. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Á milli sjónvarpshols og stofu er gas arinn. Bílskúrinn er skráður 34 m2 að stærð. Eign sem hefur fengið gott viðhald og hefur verið endurnýjuð að þó nokkru leiti.Nánari lýsing á eign:Komið er inn í flísalagt
anddyri þar sem
gestasnyrting er á hægri hönd sem er flísalögð, með innréttingu og upphengdu salerni.
Inn af andyri er komið inn í rúmgott og bjart
sjónvarpshol, á milli borðstofu og stofu er gas arin.
Gengið er upp á næst pall þar er
stofa, borðstofa og eldhús. Stofan er mjög rúmgóð með stórum gluggum til suðurs og þar er útgengi út á
suðursvalir sem eru flísalagðiar með stga niður í garð. Hvíttað eikarparket er í stofum, á stiga og herbergjum og loft eru gifsklædd með innfelldri lýsingu í stofu og borðstofu.
Eldhúsið er sérstaklega glæsilegt og stílhreint, stór eyja með granít borðplötu og vínklæli. Hvít innrétting með tækjaskáp og granít borðplötu, tveir ofnar, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Öll tæki eru frá AEG og eru 7 ára gömul.
Á efsta palli eru þrjú svefnherbergi öll með fataskápum, tvö góð barnaherbergi og rúmmgott hjónaherbergið, þar er útgengi út á
svalir sem snúa til austurs.
Baðherbergið sem er á efsta palli er flísalagt með innréttingu og rúmgóðum sturtuklefa. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með dökkum og hvítum ítölskum keramik flísum með marmaraáferð.
Neðsta hæðin er með rúmgóðum
inngang með skápum, stórt
stúdíó herbergi, stórt
þvottahús með hvítum innréttingum og vaski. Einnig er
snyrting með sturtu, flísalögð í hólf og gólf. Á gólfi á neðstu hæð er ljóst harðparket.
Bílskúrinn er rúmgóður með upprunalegri bílskúrshurð ásamt inngönguhurð, þar er kalt vatn.
Garðurinn er sérstaklega glæsilegur með heitum potti, útieldhúsi og pöllum. Falleg beð með fjölbreyttum gróðri og köldum
geymsluskúr og viðbyggðri sorptunnugeymslu.Bílaplan og stéttar fram við húsið eru með hitalagnir að hluta.
Annað:-Garður, stórglæsilegur var endurhannaður 2020. Pallar, beð, heitur pottur frá NormX og yfirbyggt útieldhús.
-skólp endurnýjað út í brunn.
- Nýjar lagnir lagðar fyrir gólfhita og endurnýjaðarárið 2018. Gólfhiti er á ofnakrönum.
-Nýjar lagnir eru í eldhúsi, þvottahúsi og á allri neðstu hæð hússins. Gólfhiti þar einnig, nema á baðherbergi.
-Steyptur stigi var fjarlægður milli hæða árið 2020 til að koma fyrir sturtu. Baðherbergið á neðstu hæð var stækkað og rúmgóðri sturtu komið fyrir.
-Þakjárn og flasningar endurnýjað á neðra þaki árið 2022.
-Eldhús endurnýjað árið 2019 og allar lagnir í því.
-Rafmagn endurnýjað að hluta 2019, áður var búið að endurnýja það að hluta og setja innfelld ljós í stofu og borðstofu.
-Drenlögn var sett fyrir framan hús að stétt og til suðurs.
-Lagnir, blöndunartæki, salerni og vaskur á litla baðinu við forstofu var endurnýjað 2020 og flísalagt að hluta.
-Húsið er nýmálað.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 ; einar@fastborg.is og María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-3934 ; maria@fastborg.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.