Valhöll fasteignasala og Vilborg G, lgfs kynna nýja eign:
FALLEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SUÐURSVÖLUM.
BÍLASTÆÐI FYLGIR ÍBÚÐ Í BÍLAKJALLARA.
Húsið er steinsteypt íbúðarhús, 5 hæðir og ris.
Íbúðin er 55,4 fm skv. Fasteignaskrá þ.a. er geymsla 4,5 m2 og stæði í bílakjallara er skráð 26,8 fm.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús. stofu með útgengi á suðursvalir, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi auk bílastæðis með þvottaaðstöðu og geymslu. Auk þess er ameiginlegt þvottahús og reiðhjóla- og vagnageymsla.
Gengið er inn frá bílaplani á 2.hæð hússins þar sem eru næg bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg í síma 891 8660 eða vilborg@valholl.is.
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Eldhús/stofa- og borðstofa liggja saman í opnu rými.
Eldhús er með snyrtilegri upprunalegri innréttingu.Viðarparket á gólfi.
Stofan er björt með gluggum til suðurs og útgengi á svalir, góður borðstofukrókur skilur að eldhús og stofurými. Viðarparket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og viðarparketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtu og sturtugleri, vaskur og tengi fyrir þvottavél. Gott hillupláss er á baðherbergi. Flísar á gólfum og í kringum baðkar.
Sér geymsla íbúðar er í kjallara. Skráð stærð hennar er 4,5 fm.
Stæði í bílakjallara er rétt við inngang í sameign frá bílakjallara. (sjá mynd)
Nýlegt dyrasímakefi með myndavél er í stigagangi.
Þvottahús er sameigninlegt í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð hússins.
Góð eign á vinsælum stað með skóla og leikskóla í hverfinu auk verslana og og þjónustu. Skemmtilegar gönguleiðir eru meðfram sjónum og miðbærinn í næsta nágrenni.
Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið framkvæmt:
2017 - Blokk steypuviðgerð, gert við glugga og máluð.
2022 - Dyrasímakerfi með myndavél í stigagang.
2024 - Þak endurnýjað að miklu leiti (járn, pappi, rennur, þakgluggar og timbur eftir þörfum)
2024 - Ný bílskúrshurð í bílakjallara.
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg í síma 891 8660 eða vilborg@valholl.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Sérstaklega undanþegið fylgifé:
[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.Sérstaklega undanþegið fylgifé:
[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]