Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Álftamýri LEIGA 54

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
49.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
250.000 kr.
Fermetraverð
5.051 kr./m2
Fasteignamat
41.900.000 kr.
Brunabótamat
25.650.000 kr.
VB
Viðar Böðvarsson
Lögg fasteignasali
Byggt 1963
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2014308
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
10102
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir til leigu: 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Álftamýri 54 í 108 Reykjavík.
 Björt  og hugguleg 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð á þessum vinsæla stað  við Álftamýri.  Íbúðin er með suðursvölum sem snúa út í gróinn garð sem er á bakvið húsið. Stutt í skóla, leikskóla, alla verslun og  þjónustu svo sem Kringluna. .Íbúðin er skráð 49,5 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign sem er 4,1 fm að stærð. Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á vinsælum stað í Safamýrinni. Stutt er í leik-og grunnskóla, alla verslun, þjónustu og almenningssamgöngur. Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is
 

Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri / miðrými sem er með gegnheilu fiskibeinaparketi úr eik og tengir saman önnur rými íbúðarinnar. 
Eldhús er opið inn í stofu sem er mjög björt  með fallegum stórum gluggum.Eldhúsinnréttingin er hvít með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa, keramikhelluborð, bakaraofn, vifta og borðkrókur.
Gólfefni á eldhúsi og stofu er gegnheilt fiskibeinaparket úr eik. Svefnherbergi er rúmgott með upprunalegur fataskápum og farið er út á suðursvalir úr svefnherberginu. Dúkur á gólfi.
Baðherbergið flísalagt  með mósaíkflísum á gólfi og veggjum að mestum hluta, sturtan er flísalögð með sömu flísum með hengi og tengi fyrir þvottavél. Þvottavél fylgir með í leigu
Sérgeymsla: Skráð 4,1 fm og er í sameign í kjallara. Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél er inni á baði en einnig er sameiginlegt í kjallara hússins. Þar eru vélar í eigu húsfélagsins (þvottavél og þurrkari) sem allir íbúar hússins geta nýtt sér.
Sameign: Sameignin er öll hin snyrtilegasta. Sameiginleg hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi eru á jarðhæð / kjallara. Eignaumsjón sér um rekstur húsfélagsins. Garður: Sameiginlegur gróinn garður og bílastæði. Búið er að skipta um glugga og gler í eldhúsi og stofu. Endurnýjaðar innihurðar ásamt útidyrahurðinni inn í íbúðina.Um er að ræða langtímaleigu. Leiguverð kr. 250.000.- Hiti og rafmagn er innifalið í húsaleigu.

Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is
 

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/09/202336.700.000 kr.42.500.000 kr.49.5 m2858.585 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin