Glæsilegt og vel skipulagt 221 fm einbýlishús á einni hæð með tvöföldum steyptum bílskúr.
Birt stærð samkvæmt þjóðskrá er 221.3 fm. Fasteignamat er 85.000.000
NÁNARI LÝSING:
Komið er inn um rúmgóða flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Inn af forstofu er svefnherbergi með innbyggðum fataskáp og einnig gestasalerni með upphengdu salerni og innréttingu.
Frá forstofu er komið inn í opið rými með sjónvarpsholi, eldhúsi og stofu. Eldhúsið er rúmgott með svartlakkaðri innréttingu og góðri vinnuaðstöðu. Stofan er virkilega björt og rúmgóð með kamínu og þaðan er útgengt í garðinn.
Sjónvarpsholið er í miðrými hússins og er þaðan gengið yfir á svefherbergisgang.
Á svefnherbergisgangi eru 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Svefnherbergin eru rúmgóð og með innbyggðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með innfelldri lýsingu.
Aðalbaðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum, upphengdu salerni, nuddbaðkari og sturtu.
Þvottahús með innréttingum í góðri vinnuhæð.
Harðparket er á öðrum gólfum en forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi.
Húsið er timburhús á einni hæð en bílskúrinn er steyptur (tvöfaldur bílskúr)
Yfirbyggð verönd (pergola) er út af stofu og þar að auki 30 fm pallur með heitum potti. Eins er búið að steypa grunn fyrir um 14 fm skúr með gólfhita á lóðinni. Hiti er í plani.
Hér er um að ræða fallegt og vel við haldið fjölskylduhús á góðum stað í nýlegu hverfi þar sem öll þjónusta er innan seilingar.
Fyrirvarar
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
02/06/2016 | 37.150.000 kr. | 42.500.000 kr. | 221.3 m2 | 192.046 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
260 | 210 | 98 | ||
260 | 241.7 | 116,9 | ||
260 | 215 | 108 | ||
260 | 217.8 | 109 | ||
230 | 204.1 | 112,5 |