Fasteignaleitin
Opið hús:16. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 4. sept. 2023

Arnarás 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
127.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
782.302 kr./m2
Fasteignamat
96.500.000 kr.
Brunabótamat
75.350.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2244558
Landnúmer
178971
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Erling Proppé & REMAX kynna: Virkilega falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja 127,7 fm. íbúð á 2. hæð með sérinngangi við Arnarás 7, Garðabæ.

Íbúðin er skráð 120,5 fm. og skiptist í forstofu, bjarta stofu og borðstofu, opið eldhús með eyju, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með glugga, þvottahús og rúmgóða 7,2 fm. geymslu staðsetta í sameign.   

Gott húsfélag og virkt samstarf.

Góð eign með fallegu útsýni í hinu eftirsótta Ásahverfi í Garðabæ, náttúra og fallegar gönguleiðir í nágrenninu. Stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.  

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð, með nýlegum PAX skápahurðum og flísar eru á gólfum.
Eldhús er með eyju og vandaðri hvítri innréttingu frá AXIS með góðu skápaplássi, spanhelluborði, blástursofni og viftu. Úr eldhúsi er opið inn í borðstofu- og stofu.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt.  Úr stofu er útgengt út á 7 fm. skjólgóðar suðvestur svalir sem snúa inn í sameiginlegan garð. 
Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi, öll með vönduðum fataskápum frá AXIS filmað hvítt.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu og vaski. Einnig er sturtubaðkar með nýlegum blöndunartækjum. Gott skápapláss og opnanlegur gluggi. Baðinnrétting var filmuð hvít af fagaðila sem og skápur fyrir aftan hurð. En fyrir aftan skáp er einnig tengi fyrir sturtu svo möguleiki er að bæta henni við síðar.
Þvottahús er innan íbúðar, vinnuborð með vaski ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er staðsett í sameign, 7,2 fm. á stærð, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald, m.a.:
2022 - Þakið yfirfarið og málað. Innan íbúðar var skipt var um blöndunartæki í baðkari og sturtu.
2021 - Eldhús endurnýjað að hluta.  Settur nýr vaskur, bökunarofn og helluborð. Einnig var hvítt gler frá Íspan sett á milli skápa og á borðplötu. Einnig voru fataskápar og baðinnréttingar filmaðar af fagaðila. Einnig var íbúðin máluð (loft og veggir) að undanskildu þvottahúsinu.
2020 - Skipt um þrýstijafnara. Innan íbúðar var einnig sett nýtt harðparket og gólflistar.
2017 - Húsið yfirfarið og málað.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf   // s. 690-1300 // erling@remax.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/10/202375.250.000 kr.89.900.000 kr.127.7 m2703.993 kr.
02/12/202055.200.000 kr.63.000.000 kr.127.7 m2493.343 kr.
30/01/201228.800.000 kr.33.200.000 kr.127.7 m2259.984 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
137.2 m2
Fjölbýlishús
322
1031 þ.kr./m2
141.500.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
144.2 m2
Fjölbýlishús
322
1109 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
145.1 m2
Fjölbýlishús
322
1033 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
150.8 m2
Fjölbýlishús
523
994 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin