Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Grundarhús 6, 112 Reykjavík.
Fallega, nýlega (2025) mikið endurnýjaða og bjarta 126,3 fm 5 herbergja endaíbúð á 2.hæð + rishæð með með sérinngangi á frábærum stað í Húsahverfi Grafarvogs.
- Eignin er skráð skv. HMS 126,3 fm
- Endaíbúð í vestur, með glugga á þrjá vegu
- Sér inngangur
- Þvottahús innan íbúðar
- Rúmgóð 3 svefnherbergi auk risloft sem gæti nýst sem herbergi
- Endurnýjað sumar 2025, m.a. Eldhús, eldhústæki, gólfefni, innihurðir, skápur í holi, baðherbergi að mestu, mikið af tenglum+rofum, nýmáluð og fl
- Endurnýjaðar 2025 suðvestur sólríkar svalir
- 2 sérmerkt bílastæði á lóð
Eignin skiptist í: Forstofu, þvottahús, hol, gestasalerni, eldhús, stofu/borðstofu, stigagang, svefnherbergisgang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og risloft/geymslu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Parketlögð.
Þvottahús: Af forstofu. Rúmgott dúklagt með glugga, vaski, skáp og þurrkgrind.
Hol: Parketlagt með nýlegum hvítum skáp. Af því eru gestasalerni, eldhús, stofa/borðstofa og stigi upp á efri hæðina.
Gestasalerni: Flísalagt með salerni og vaski.
Eldhús: Eldhúsið er af holi. Parketlagt. Mjög fallega nýlega endurnýjað. Með U-laga hvítlakkaðri höldulausri Ikea innrétting með nýju span helluborði, ofni, viftu. Einnig fylgir ísskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð (er ekki ný). Nýlegur vaskur og blöndunartæki. Gott borðpláss og tveir gluggar.
Stofa/borðstofa: Parketlögð, rúmgóð og björt með óvenju mikilli gluggasetningu á 2 vegu, rúmgóð, með síðum glugga og útgengi á suðursvalir. Smartlýsing í eldhúsi, holi og borðstofu með farstýringum eða stýrt í appi.
Timburstigi er uppá rishæðina, sem er lokaður milli þrepa.
Svefnherbergishol: Parketlagt. Af því liggja 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og niðurfellanlegur stigi upp á risloftið.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er parketlagt, rúmgott með fataskáp og gluggum á tvo vegu.
2 svefnherbergi: Parketlögð. Rúmgóð.
Baðherbergi: Rúmgott flísalagt með baðkari, rúmgóðri "walk in" sturtu, nýlegri vaskinnréttingu, vaski og blöndunartæki. Stór ný sturta með nýjum blöndunartækjum. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Risloft: Af holinu er lúga með niðurdraganlegum stiga uppá mjög gott ca 10 fm geymsluloft, sem margir í þessum húsum hafa nýtt sem herbergi með þá hringstiga uppí það, velux gluggi þar.
Gólfefni íbúðarinnar: Nýlegt vínilparket er á öllum gólfum nema flísar á baðherbergi og snyrtingu. Dúkur á þvottaherbergi.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæðinni. Hússjóður er um 30 þ.pr.mán.
ANNAÐ: Eftirfarandi upplýsingar eru frá seljanda: Nýlegir ca árs gamlir velux gluggar eru á rishæðinni. Nánast allt gler hefur verið endurnýjað á síðustu árum. Mikið af tenglum og rofum í íbúðinni eru nýjir.
Lóð: Á lóðinni eru fjöldi bílastæða, 2 sérmerkt bílastæði eru á bílaplani framanvið húsið.
Staðsetningin er góð og á besta stað í Húsahverfi Grafarvogi. Örstutt í skóla, leikskóla, sundlaugina, íþróttir og fl. .
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is