Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir í einkasölu rúmgóða og bjarta 168,1 fm. íbúð með Aukaíbúð á 2 hæðum við Skógarás 1, 110 Reykjavík. Í dag skiptist eignin í 5 herbergja íbúð á neðri hæð og 3ja herbergja íbúð á efri hæð en ganga þarf í gegnum neðri hæðina til að komast á efri. Eignin er í dag í útleigu og gefur góðar leigutekjur. Mjög fallegt útsýni yfir borgina og til fjalla er úr íbúðinni. Hús lítur vel út og skv. seljanda var þak nýlega endurnýjað. Fasteignamat 2024 er 90.400.000 kr. Eignin getur verið laus mjög fljótlega.
Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali sími: 892-8778,
anna@fmg.is og Ólafur Kristjánsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 786-1414, tölvupóstur
olafur@fmg.is ********** Fyrstu kaupendur **********
Ef þú ert að kaupa fyrstu íbúðina þín þá eru 85% lán hjá
HMS og
VR sem er góð leið til að kaupa sjálf þína eigin íbúð.
Tvær íbúðir sem er frábært fyrir stórar fjölskyldur með uppkomin börn.
Einnig geta leigutekjur talist til tekna í greiðslumati.
Hér er áætlun fyrir kaupin ef um er að ræða fyrstu kaup.
Neðri hæð:
Anddyri með góðum skápum. Dúkur á gólfi.
Parketlagður gangur/hol.
Stofa er opin og björt með stórum gluggum og útgengi á góðar suðursvalir með glæsilegu útsýni. Búið er að stúka af herbergi inn af stofu.
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, góðu vinnuplássi og steinplötu. Innbyggð uppþvottavél. Ísskápur fylgir. Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum.
Svefnherbergi II er þokkalega rúmgott.
Svefnherbergi III er lítið en bjart með flottu útsýni til sjávar.
Svefnherbergi IV er inn af stofu. Ágætlega rúmgott.
Efri hæð:
Nýtist í dag sem sér íbúð.
Gengið er upp parketlagðan stiga.
Eldhús og stofa/sjónvarpsrými er í opnu rými.
Rúmgott baðherbergi. Flísar á gólfi. Góður sturtuklefi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi.
Góð lofthæð og ekki mikið undir súð.
Lóðin er eignarlóð.
Meirihluti innbús má fylgja kaupunum eftir samkomulagi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% hjá einstaklingum, 1.6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar eru almennt 45-100 þús.kr. Nánari upplýsingar um öll húsnæðislán á Íslandi eru borin saman á herborg.is.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu fyrir kaupendur eru 74.400 kr. með virðisaukaskatti.
Vegna mikillar sölu vantar Fasteignamiðlun Grafarvogs eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið frítt sölumat og skoðun á ykkar eign.
Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu FRÍTT sölumat. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
Heimsækið okkur á Facebook.
Og okkar heimasíðu.