Fasteignaleitin
Skráð 25. júlí 2023

Austurbyggð 16 efri hæð

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
180.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
498.613 kr./m2
Fasteignamat
79.200.000 kr.
Brunabótamat
92.300.000 kr.
Mynd af Gunnar Aðalgeir Arason
Gunnar Aðalgeir Arason
Löggiltur fasteignasali
www.kaupa.isEignalisti
Byggt 1961
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2144954
Landnúmer
147148
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gamalt
Raflagnir
Gamalt
Frárennslislagnir
Gamalt
Gluggar / Gler
Gamalt
Þak
Lagður var PVC dúkur á Bílskúrs þak 2025 og gert við þakkantinn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar suður svalir
Lóð
50,55
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
- Móða á glerjum í bílskúr.
- Tími kominn á málningu og einhverjar múrviðgerðir að utan.
- Ofn í forstofu er orðinn lélegur, til er nýr í bílskúr
Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Austurbyggð 16 - Falleg og mikið endurnýjuð 5 herbergja efri hæð í tvíbýli með stakstæðum bílskúr í Austurbyggð - samtals 180,3 m² þar af telur bílskúr 37,3 m²


Eignin skiptist í forstofu, stiga og stigapall, stofu, borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu/herbergi í kjallara, sameignarrými og stakstæðan bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og þaðan er steyptur stigi upp á stigapall þar sem teppi hefur verið rifið af. Á stigapalli eru skápar sem fylgja með við sölu.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð rými með harðparketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Í dag er hluti stofu afmarkaður með skilrúmum og nýttur sem herbergi.
Eldhúsið er flísalagt með ljósri snyrtilegri innréttingu og flísum á milli skápa. Hægt er að loka eldhúsinu með innfelldri rennihurð. Gólfhiti er í eldhúsi.
Þvottahús er innaf eldhúsi og þar er jafnframt kalt búr. Gólfhiti er í þvottahúsi. Úr þvottahúsi er gengið niður í sameign hússins.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll staðsett á svefnherbergisgangi. Harðparket er á gólfum herbergja og í einu þeirra eru fataskápar. Laus fataskápur á gangi fylgir með við sölu.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2019 og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er rúmgóð sturta með tveimur sturtutækjum og hengi, ljós innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Í kjallara eru sameiginleg lagnarými og sérgeymsla sem nýtt er sem svefnherbergi í dag.
Sameiginlegur bakdyrainngangur er til norðurs af jarðhæðinni ásamt öðrum sameiginlegum inngangi úr kjallara.

Bílskúrinn er stakstæður og stendur á norðvesturhorni lóðarinnar. Hann er rúmgóður, um 37,3 m² að stærð, með rafdrifinni innkeyrsluhurð og gönguhurð. Gólf eru lökkuð og þar er niðurfall. Rafmagn er í skúrnum en hvorki hiti né vatn.
Framan við bílskúrinn er stórt steypt bílaplan sem tilheyrir íbúðinni. Lóðin er að öðru leyti sameiginleg með neðri hæð.

Annað:
- Lagður var PVC dúkur á Bílskúrs þak 2025 og gert var við þakkantinn
- Baðherbergi endurnýjað árið 2019
- Gólfefni endurnýjuð að stærstum hluta árið 2020
- Útihurð við aðalinngang endurnýjuð árið 2021
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur
- Steypt plata er yfir íbúðinni með sameiginlegu geymsluplássi fyrir efri og neðri hæð
- Lúga er upp á loft frá svölum

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/04/202466.300.000 kr.67.500.000 kr.180.3 m2374.376 kr.
08/12/201425.250.000 kr.29.500.000 kr.180.3 m2163.616 kr.
15/05/201323.850.000 kr.26.000.000 kr.180.3 m2144.204 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1965
37.3 m2
Fasteignanúmer
2144954
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.750.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Greniteigur 15
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Greniteigur 15
Greniteigur 15
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
514
486 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Grímsholt 12
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Grímsholt 12
Grímsholt 12
250 Garður
166.8 m2
Raðhús
413
479 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Skarðshlíð 30a
Skarðshlíð 30a
603 Akureyri
96.4 m2
Fjölbýlishús
312
538 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Fljótsmörk 14
Heitur pottur
Skoða eignina Fljótsmörk 14
Fljótsmörk 14
810 Hveragerði
193.9 m2
Fjölbýlishús
414
542 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin