PRODOMO fasteignasala kynnir fimm - sex herbergja íbúð á annarri hæð að Skógarbraut 922 í Reykjanesbæ.
Nánari lýsing:Eldhús með parketi á gólfi og ljósri innréttingu með helluborði, ofni, viftu og innbyggðum örbylgjuofni.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir. Hluti af stofu hefur verið gerður að herbergi, auðvelt er að opna rýmið aftur.
Svefnherbergis gangur með parketi á gólfi, þar er lítill skápur ásamt góðum skó hirslum.
Svefnherbergin fimm eru með parketi á gólfum og það eru fataskápar í fjórum þeirra.
Baðherbergin tvö eru með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er hvít innrétting og baðkar með sturtu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherberginu.
Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar er dúkur á gólfi. Sér
geymsla er í sameign, þar er málað gólf.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða hakon@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.