Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2026

Jöfursbás 3c Íb. 111

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
97.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
949.898 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541018_4
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
11
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður-svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaðar og vel hannaðar íbúðir við Jöfursbás 3c, Reykjavík - íbúð 0111. Er 4ja herbergja 97,8 fm íbúð á jarðhæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 9,8fm. í kjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með þremur svefnherbergjum. Vesturverönd út frá stofu með útsýni til sjávar.  Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm. 
Sjá skilalýsingu hér.

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Harðviðarval og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa rúmgóð með fataskáp 
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu
Stofa með góðum gólfsíðum gluggum og útgengt á vesturverönd með sjávarútsýni.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með quartz borðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Barnaherbergi eru tvö , annað með fataskáp.
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar


Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 24 talsins, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 52,3 fm-171,4  m2  

// VILDARKORT LINDAR // sem allir viðskiptavinir Lindar fá afhent við kaupsamning
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Strönd þar sem hægt er að fara á í fargufu og sæþotuleiga.


Allar upplýsingar um eignina veitir
Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2541018
Byggingarefni
steypt
Númer eignar
PO 12
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarbær L 170237
Heiðarbær L 170237
806 Selfoss
129.4 m2
Sumarhús
624
688 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 1B Þakíbúð
Bílastæði
Þorraholt 1B Þakíbúð
210 Garðabær
165.2 m2
Fjölbýlishús
423
Fasteignamat 129.100.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 108
Opið hús:18. júní kl 17:00-12:30
Skoða eignina Njálsgata 108
Njálsgata 108
105 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
312
891 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Opið hús:14. júní kl 13:30-14:00
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin