VALBORG kynnir í einkasölu: Smyrlaheiði 1, 810 Hveragerði.Fallegt 2ja herbergja raðhús á einni hæð með stæði í bílakjallara og aðgengi að hverfishúsi/samkomuhúsi.
Húsið er skráð 98,4 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin skiptist í anddyri, forstofugang, hjónaherbergi, baðherbergi og alrými með stofu, borðstofu og eldhús.
Lítil geymsla og gólfhiti er innan íbúðar.
Í bílakjallara er sérgeymsla, sérmerkt bílastæði og sameiginlegt bílaþvottastæði.
Nánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri með fjórföldum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með efri og neðri skápum og bakarofni í vinnuhæð.
Innréttingin var sprautulökkuð fyrir tæplega tveimur árum síðan og kemur það mjög fallega út.
Ný tæki, ofn, háfur, eldavél & bakarofn eru í eldhúsi.
Stofa: Alrými með eldhúsi & stofu. Mikil lofthæð er í stofu og stórir gluggar.
Stofan er ný máluð og þar eru nýjar, ljósar rúllugardínur.
Frá stofu er aðgengi út á skjólgóðan & gróðursælan sælureit.
Svefnherbergi: Rúmgott með stórum síðum glugga. Stór sexfaldur fataskápur.
Þá er geymsla inn af hjónaherbergi sem einnig nýtist sem fataherbergi.
Hjónaherbergið er nýmálað og einnig með nýjum gardínum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu og speglaskáp, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og salerni.
Á baðherbergi er lokað rými með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslur: Eigninni fylgir lítil geymsla inn af hjónaherbergi og sérgeymsla í bílakjallara.
Íbúðin var tekin í gegn fyrir tæplega tveimur árum síðan.
Nýtt parket er á eigninni, þá er hún einnig nýmáluð. Nýjar gardínur í stofu og svefnherbergi.
Eldhúsinnrétting var sprautulökkuð og ný tæki eru í eldhúsinnréttingu.
Gott aðgengi er fyrir hjólastóla í öllum íbúðum samstæðunnar. Gott aðgengi er að húsinu og snjóbræðsla í hellulögn.
Raðhúsið er staðsett í íbúakjarna þar sem í miðju hans er hverfishús/samkomuhús.
Þar hafa eigendur aðgang að vel búnum veislusal, kaffistofu og samverustað.
Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til
seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.