Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2025

Bárusker 3

RaðhúsSuðurnes/Sandgerði-245
82.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.500.000 kr.
Fermetraverð
688.185 kr./m2
Fasteignamat
53.000.000 kr.
Brunabótamat
51.000.000 kr.
Mynd af Gylfi Þór Gylfason
Gylfi Þór Gylfason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2525366
Landnúmer
234525
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Tilvalin fyrstu kaup.
Valhöll fasteignasala og Gylfi þór s. 7704040 kynna fallegt og vel skipulagt raðhús við Bárusker 3 B 245 Sandgerði birt stærð er 82,1m² . Fasteignamat næsta árs er 53.000.000 kr.
 

Eignin var byggð 2022 og er á einni hæð með sérinngangi að norðanverðu og aðgengi út á sólpall með skjólveggjum að sunnanverðu. Í nágrenni er öll helsta þjónusta, grunnskóli og leikskóli, sundmiðstöð, líkamsrækt og verslun. 

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu, mjúklokun á skúffum og hurðum, innbyggðri uppþvottavél, ofni og örbylgjuofni. Harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu alrými með harðparketi og útgengi út á timburklæddan sólpall með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp. 
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er með upphengdu salerni og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar, um 3,8 m² að stærð.
Sólpallur um 18 m², timburklæddur með skjólveggjum.
Lóð og aðkoma:
Lóðin er tyrfð og snyrtileg með malbikuðum bílastæðum fyrir framan enda húsaraðarinnar. 

Byggingarlýsing:
Húsið er byggt úr timbri á staðsteyptum undirstöðum með kraftsperruþaki. Útveggir eru klæddir með bandsagaðri timburklæðningu í dökkgráum lit. Hurðir og gluggar eru úr timbri í hvítum lit. Þakkantur er timburklæddur í hvítum lit og þak er báruklætt (aluzink). Gólfhiti er í rýmum.

Nánari upplýsingar veitir:
Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.




 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/09/202327.650.000 kr.49.500.000 kr.82.1 m2602.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 49
Bílskúr
Opið hús:03. maí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Vorbraut 49
Vorbraut 49
210 Garðabær
229.5 m2
Raðhús
53
998 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 47
Bílskúr
Opið hús:03. maí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Vorbraut 47
Vorbraut 47
210 Garðabær
229.5 m2
Raðhús
53
998 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 41
Bílskúr
Opið hús:03. maí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Vorbraut 41
Vorbraut 41
210 Garðabær
228.3 m2
Raðhús
53
1003 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 45
Bílskúr
Opið hús:03. maí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Vorbraut 45
Vorbraut 45
210 Garðabær
229.5 m2
Raðhús
53
998 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin