Nýtt á skrá! Haðaland 13 í Fossvogi Reykjavík. Glæsilegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús á einni hæð innst í botnlanga sem stendur á stórri lóð, með tvennum veröndum og heitum potti - fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóðar stofur og tvöfaldur bílskúr.
Eignin er sýnd í einkasýningum. Hægt að bóka skoðun á heimir@fastlind.is og í síma 849-0672.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna glæsilegt og frábærlega staðsett 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr á fjölskylduvænum stað við Haðaland 13 í Reykjavík. Húsið er alls 233,9 fermetrar að stærð og þar af 52,7 fermetra tvöfaldur bílskúr. Húsið er virkilega sjarmerandi með fallegum arni og stórum gluggum til suðurs sem hleypa inn mikilli birtu. Eignin er mjög vel skipulögð og nýtast fermetrar hússins því afar vel. Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, rúmgóð stofa (arinstofa og borðstofa), sjónvarpsstofa, eldhús, tvö baðherbergi, þvottaherbergi, geymsla, forstofa og bílskúr.
Útgengi er úr stofu á skjólgóða afgirta verönd til vesturs með heitum potti. Auk þess er útgengi frá sjónvarpsstofu á rúmgóða verönd til austurs. Tyrfð lóð til suðurs með geymsluskúr. Lóðin er vel hirt, með fallegum gróðri og kvöldlýsingu á völdum stöðum. Staðsetning hússins er neðarlega í Fossvogi þar sem garðarnir eru þekktir fyrir að vera í miklu skjóli og veðursæld.
Eignin hefur fengið mikið viðhald í gegnum árin að utan sem innan. Má þar m.a. nefna að árið 2000 var húsið stækkað um 24 fermetra (bætt við tveimur stórum svefnherbergjum) og þakinu lyft. Árið 2002 var garður, hellulagnir og aðkoma að húsinu tekuð upp og allt endurnýjað. Árið 2005 var húsið einangrað að utan og steinað. Þá hefur húsið verið sömuleiðis mikið endurnýjað að innan. Árið 1999 var eldhús endurnýjað og árið 2003 var stærra baðherbergi inn af svefnherbergisgangi endurnýjað. Árið 2006 var allt endurnýjað í stofu, anddyri og auka baðherbergi við anddyri. Þá var einnig skipt um parket, skápa í svefnherbergjum ásamt innréttingum í sjónvarpsherbergi. Þvottaherbergi var endurnýjað árið 2013. Þá er búið að skipta um nánast alla ofna í húsinu og gólfhitakerfi komið fyrir undir flísum. Auk þess var botnlangi (malbikun) og allar lagnir í botnlanga endurnýjaðar árið 2019.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni sem liggja um Fossvogsdalinn, inn í Elliðaárdalinn, Nauthólsvík og víðar. Frábær fjölskyldueign í einu vinsælasta hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing:
Anddyri: Með flísum á gólfi, gólfhita og skápum.
Baðherbergi I: Með flísum á gólfi, flísalögð sturta með glerhurð, upphengdur vaskur með Vola blöndunartækjum, upphengt salerni og gluggi til suðurs.
Stofa: Er rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi og fallegum arni. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til suðurs og útgengi á verönd I til vesturs.
Verönd I: Er afgirt, skjólgóð, með heitum potti og snýr til vesturs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 1999. Flísar á gólfi og gólfhiti. Falleg ljós viðar eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa og lýsingu undir efri skápum. Siemens bakaraofn, keramik helluborð, stál háfur og Siemens uppþvottavél. Borðkrókur og gluggar til norðurs.
Svefngangur: Með gegnheilu parketi á gólfi.
Sjónvarpsstofa: Er staðsett inn af svefngangi og er rúmgóð. Gegnheilt parket á gólfum og útgengi á verönd II. Fallegar sérsmíðaðar innréttingar, gluggar til austurs og innfelld lýsing í loftum.
Baðherbergi II: Var endurnýjað árið 2003. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggar til norðurs og útloftun.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg, innfelldri lýsingu og gluggum til austurs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi, góðum skápum, innfelldri lýsingu og gluggum til austurs og suðurs.
Svefnherbergi III: Er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi, góðum skápum, innfelldri lýsingu og gluggum til suðurs og vesturs.
Svefnherbergi IV: Er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi, innfelldri lýsingu og gluggum til suðurs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott og með flísum á gólfi. Góð innrétting með miklu skápaplássi, upphækkun undir þvottavél og þurrkara og vaski.
Geymsla/fataherbergi: Er staðsett inn af svefngangi. Dúkur á gólfi, hillur og gluggi til norðurs.
Bílskúr: Er tvöfaldur og 52,7 fermetrar að stærð. Upphitaður ásamt köldu/heitu vatni. Inngangshurð austan megin. Hellulögð stæði fyrir framan bílskúr.
Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672