FS fasteignir – 571-9992Víðivellir 12, 600 AkureyriMjög skemmtileg og snyrtileg þriggja herbergja 71m
2 parhúsaíbúð á einni hæð, góð timburverönd og stór garður til suð/vesturs.
Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, snyrtingu, sturturými, stofu, eldhús, þvottahús og geymslu.
Forstofa flísar á gólfi.
Hol parketi á gólfi.
Snyrting með flísum á gólfi, vaskur, speglaskápur og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og er skápur í stærra herberginu.
Stofa parket á gólfi.
Eldhús parket á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Sturturými úr eldhúsi er gengið niður um tvö þrep, þar er sturturými með sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Þvottahús með útgengi út á timburverönd til suðurs. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara og hillur í þvottahúsi.
Geymsla er innaf þvottahúsi með opnanlegum glugga.
Annað: - Góð timburverönd og stór garður til suð/vesturs.
- Sér inngangur.
- Eirlangir.
- Um árið 2000 var þak endurnýjað ásamt endurnýjun á vatnslögnun og frárennsli út fyrir vegg, einnig var skipt um rafmagstöflu og hluta af rafmagni.
- Ljósleiðari.
- Örstutt í leik- og grunnskóla, verslun og ýmsa aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.