Opið hús fimmtudaginn 19. nóvember frá kl 16:45 til 17:30 - Safamýri 57, 108 Reykjavík
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg, björt og mikið endurnýjuð efri hæð með sérinngangi ásamt bílskúr í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað í Safamýri.
Eignin er skráð 147,8 fm (þar af bílskúr 28,4 fm). Þar að auki fylgja tvær geymslur í kjallara hússins sem eru ekki skráðar í birta fermetratölu eignarinnar.Lýsing eignar:
Forstofa: Gengið upp um stóran og bjartan stigagang upp á hæðina, fatahengi við inngang, kókosteppi á stiga og stigapalli, á stigapalli efri hæðar eru fataskápar og útgengi á
svalir sem snúa í suður.
Setustofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum í tvær áttir, parket á gólfi,
Borðstofa: Opin við setustofu, parket á gólfi, útgengt á
svalir sem snúa í vestur.
Eldhús: Hvít endurnýjuð innréttting, mikið skápa og vinnupláss, quartz borðplata, gaseldavél, parket á gólfi, gluggar á tveimur hliðum.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápar, útgengt á
vestursvalir hæðarinnar.
Svefnherbergi 2: Rúmgott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 3: Einnig rúmgott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski, handklæðaofn, gluggi.
Vandað eikarplankaparket er á gólfum hæðarinnar nema baðherbergi sem er flísalagt og stiga/stigapalli sem er teppalagður.
Eigninni fylgir aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara hússins sem er rúmgott og snyrtilega umgengið, útgengt á lóðina úr þvottahúsinu.
Hæðinni fylgir rúmgóður 28,4 fm
bílskúr (fjær húsinu) og innkeyrslan þar fyrir framan. Flísar á gólfi, gluggi í endanum, hiti, rafmagn og rennandi vatn. Nýlega endurnýjaður bílskúrsfrontur með hefðbundinni inngönguhurð og tveimur gluggum.
Hæðinni fylgja
tvær sérgeymslur í kjallara hússins sem eru ekki skráðar í birta fermetratölu eignarinnar.
Sameiginleg
hjólageymsla er undir útistiga.
Viðhald/endurbætur:2026 - Múrviðgerðir á húsi og tröppum
2023: Þakjárn, þakpappi, flasningar, túður, rennur og niðurföll endurnýjuð.
2012: Frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar.
Gler hefur verið endurnýjað að hluta á undanförnum árum.
Afar falleg eign á vinsælum stað, stutt í alla helstu verslun og þjónustu og helstu stofnæðar.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is