Opið hús þriðjudaginn 10.nóvember frá kl 16:45 til 17:30 - Framnesvegur 23, 101 Reykjavík - íbúð 0301
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í þriggja íbúða húsi á rólegum og eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum.
Íbúðin er á efstu hæð með fallegu útsýni af rúmgóðum suðvestur svölum.
Eingöngu þrjár íbúðir eru í húsinu og er stigagangur rúmgóður og á neðstu hæð er hjólageymsla og geymsla. Um er að ræða einstaklega fallega eign með þremur svefnherbergjum, ný uppgerðu baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar. Gegnheilt nýpússað parket er á allri íbúðinni. Eldhús og allar hurðar í íbúðinni voru filmaðar í fallega gráum lit og nýjar höldur settar á eldhús. Frábært útsýni er úr rúmgóðri stofunni og vísa gluggar í suður, vestur og norður yfir litríka húsadýrð Vesturbæjarins.Eignin er skráð 128fm (þar af geymsla 7.9 fm)Lýsing eignar:Forstofa/Hol: Komið er inn í forstofu/hol sem tengir saman rými íbúðarinnar, gegnheilt parket og vegginnfellt fatahengi.
Eldhús: Rúmgott eldhús sem er opið við stofur, grá viðarinnrétting með granítborðplötu og mjög gott skápa og vinnupláss. Eldunareyja er með borðkrók og hærri skáp sem skermir af eldhús frá stofum að hluta. Gluggar í eldhúsi með frábæru útsýni yfir gamla vesturbæinn.
Herbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi. Hjónaherbergi er við hliðina á baðherbergi og nýtur næðis frá öðrum herbergjum í húsinu. Hjónaherbergið vísar út á Framnesveg með góðum gluggum.
Herbergi 2: Gott herbergi með innfelldum fataskápum. Parket á gólfi
Herbergi 3: Gott herbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallega grænar „subway“ flísar á baðherbergi sem var endurnýjað fyrir fáeinum árum síðan. Flísar á veggjum og gólfi og upphengt salerni. Baðkar með flísalagðri hlið og gleri áfast við baðkarsbrún. Hvít innrétting með tvöföldum vaski og speglaskáp ofan við vask.
Þvottahús: Er innan íbúðar. Flísar á gólfi, tengi fyrir tvær vélar (þvottavél og þurrkara). Vegghillur og vaskur.
Stofa: Rúmgóð stofa sem tengir við eldhús og hol. Gluggar vísa í suður, vestur og gluggar úr eldhúsi vísa í norður. Rúmgóðar svalir eru með aðgengi út frá stofu með tvöfaldri hurð.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla á jarðhæð hússins (7,9 fm).
Vönduð og vel staðsett íbúð - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina og Grandann. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is