STAKFELL 535-1000 KYNNIR Í EINKASÖLU: Björt og vel skipulögð 95,0 fm 3ja herbergja endaíbúð á annarri hæð í lyftuhúsi. Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum og geymslu innan íbúðar. Rúmgóðar svalir til suðvesturs. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir og skóla. Hafið samband til að bóka skoðun.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Gígja löggiltur fasteignasali í síma 662 1166 eða johanna@stakfell.is
Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.isNánari lýsing.Anddyri er flísalagt með fataskáp.
Eldhús er með fallegri eikar innréttingu, keramik helluborði og bakarofn í vinnuhæð.
Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem snúa bæði til suð-vesturs og vesturs, svalirnar er 9,3 fm og snúa til suð-vesturs. Einstaklega fallegt útsýni er úr eldhúsi yfir Ingólfsfjall.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi/þvottaaðstaða er flísalagt, stór baðinnrétting og stór sturta er á baðherberginu. Inn af baðherberginu er þvottaaðstaða með innréttingu sem rúmar bæði þvottavél og þurrkara.
Gólfefni, plastparket er í stofu, eldhúsi og herbergjum. Flísar eru á baði og forstofu.
Rúmgóð geymsla innan íbúðar.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla
** Áætlað fasteignamat 2023 er: 44.150.000.-
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.