Nýtt og glæsilegt 160,6 fm 4ra herbergja raðhús með bílskúr við Axlará 10A, 221 Hafnarfirði.
Egnin skiptist í 135,4 fm íbúð og 25,2 fm bílskúr, samtals 160,6 fm skv. HMS.
Húsið afhendist tilbúið að utan og fokhelt að innan en hægt er að semja við seljanda um að fá húsið lengra komið.Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu.
Þakið er staðsteypt með tvöföldum bræddum þakdúk og einangrað með torfi.
Gluggar og opnanleg fög eru úr ál/tré kerfi að utan og grunnaðir að innan.
Hurðar og rennihurðar eru úr áli.
Búið verður að leggja rafmagnslagnir fyrir útiljós í klæðningu.
Steyptir veggir að innan verða slípaðir og plata röraslödduð.
Gert verður ráð fyrir gólfhita í allt húsið en skilast án gólfhitalagna.
Ásett verð miðast við skilalýsingu seljanda um afhendingu við fokheldi.Skv. skipulagi er gert ráð fyrir anddyri með skápum, þremur svefnherbergjum öll með skápum. Eldhús, stofa og borðstofa í björtu alrými með góðri lofthæð, gert er ráð fyrir eyju í eldhúsi með barsólaaðstöðu. Stofan er með gólfsíðum gluggum og rennihurð út í bakgarð. Tvö baðherbergi eru í húsinu, í aðalbaðherbergi er gert ráð fyrir baðkari og walk-in sturtu og í auka baðherbergi innaf hjónaherbergi er gert ráð fyrir walk-in sturtu. Gert er ráð fyrir vaski í þvottahúsi. Innangengt verður úr anddyri í bílskúr og geymsla verður innst innaf bílskúr.
Um er að ræða nýtt og glæsilegt raðhús á frábærum stað í nýju hverfi, Áslandi 4, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Sigurmannsson löggiltur fasteignasali í s. 655-7000 / stefan@as.is
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is