Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Karlagata 18, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-0903 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin hefur nánast öll verið tekin í gegn. Seljandi ábyrgist að nýtt þak verði sett á eignina. Karlagata 18 er lítið fjölbýli. Húsið stendur á horni Karlagötu og Gunnarsbrautar, byggt árið 1938.
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á miðhæð í steinsteyptu þríbýlishúsi við Karlagötu 18 í Norðurmýrinni, 105 Reykjavík.
Íbúðin er 59,6 fm og var tekin í gegn árið 2026: nýtt eldhús með innbyggðum tækjum, baðherbergi endurnýjað frá grunni, nýir ofnar, nýtt gólfefni, íbúðin öll máluð og ný sér forstofa með geymslu. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu undir stiga. Skipulagið er sveigjanlegt: hægt er að hafa tvær stofur og eitt svefnherbergi, eða loka á milli stofanna og nýta íbúðina sem tvö svefnherbergi og stofu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Ný sér forstofa innan íbúðar með EI30 brunahurð og flísum á gólfi. Inn af forstofu er flísalögð geymsla undir stiga.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með gluggum til suðurs og vesturs. Nýtt gólfefni.
Stofa II / svefnherbergi: Rúmgott herbergi samliggjandi stofunni með góðum glugga. Nýtist sem önnur stofa eða borðstofa, en einnig er hægt að loka á milli og hafa hér hjónaherbergi. Nýtt gólfefni.
Svefnherbergi: Gott herbergi með glugga. Nýtt gólfefni.
Eldhús: Ný innrétting (2026) með góðu skápa- og vinnuplássi. Spanhelluborð, bakaraofn, innbyggð vifta og vaskur. Innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðri þvottavél og þurrkara, þannig að þvottaaðstaða er innan íbúðar. Flísar á vegg bak við eldavél og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi: Endurnýjað frá grunni árið 2026 – nýjar lagnir og niðurfall, vatnsvörn, flísalagt, sturta og ný hreinlætistæki.
Ofnar og lagnir: Nýir ofnar í íbúðinni og ofnalagnir endurnýjaðar að hluta.
Húsið og sameign: Steinsteypt þríbýlishús byggt árið 1938. Sameiginlegur inngangur var endurnýjaður 2026, teppi fjarlægt og flísalagt. Samþykktar framkvæmdir utanhúss liggja fyrir: húsið verður steinað upp á nýtt og skipt um glugga í öllum íbúðum vorið 2027. Seljandi ber allan kostnað af þessum framkvæmdum og kaupandi heldur eftir 2.500.000 kr. af kaupverði til afsals þar til þeim er lokið. Kaupandi fær því nýviðgert hús að utan án aukakostnaðar. Ný eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið fylgir kaupsamningi og nánari upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir fylgja söluyfirliti.
Staðsetning: Norðurmýrin er rólegt og gróið hverfi í göngufæri við miðborgina. Stutt í Klambratún, Sundhöll Reykjavíkur, Hlemm og Laugaveg, Landspítalann og alla helstu þjónustu. Skólar og leikskólar í nágrenninu.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur jason@betristofan.is.