Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 40fm sumarhús með fallegu útsýni á góðum stað við Meðalfellsvatn í Kjósarhreppi. Sumarhúsið er byggt árið 1978 og stendur alveg niður við vatnið.
Timburverönd sem snýr í suður og út að vatninu er umhverfis húsið.
Bústaðurinn hefur tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi auk geymslu sem gengið er inn í að utanverðu.
Rafmagn er í húsinu og búið er að taka inn hitaveitu. Kalda vatnið kemur úr uppsprettu á svæðinu.
Hér er um að ræða fallegan sælureit á góðum og eftirsóttum stað í aðeins um 30-40 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Lóðin sem er 1.000fm leigulóð er afar skjólsæl með miklum trjágróðri.
Frábær staðsetning á fallegum og gróðursælum stað og liggur alveg niður að vatninu.
Fasteignagjöld eru kr. 121.815.- pr. ár.
Lóðarleiga er kr. 190.940.- pr. ár.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is