Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Karfavogur 41

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
232.7 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
665.664 kr./m2
Brunabótamat
113.350.000 kr.
Byggt 1948
Svalir
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20230664
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt 232 fm einbýlishús sem samanstendur af hæð og kjallara auk bílskúrs. Mjög auðvelt að útbúa aukaíbúð í kjallara. Karfavogur er vel staðsett gata í Vogahverfinu í Reykjavík. Stutt er í skóla og alla aðra þjónustu. Verslunarkjarninn í Glæsibæ auk Skeifunnar er í göngufæri. Líkamsræktarstöðvar og Laugardalurinn eru í næsta nágrenni.

***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***

Nánari lýsing:
Komið er í forstofu með skáp. Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa og glugga.
Hol, borðstofa og stofa mynda mjög góða heild og er útgengt á stórar svalir frá stofu og eru tröppur frá svölum niður í garð. Til hliðar við eldhús og í framhaldi af stofu er borðstofa.
Eldhús með hvítri innréttingu með viðarborðplötu. Tengi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. 
Svefnherbergin á hæðinni eru tvö:
Rúmgott hjónaherbergi með tveimur tvöföldum fataskápum. 
Rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Fataskápur.
Það er risloft yfir allri aðalhæðinni.
Gólfefni hæðar: Harðparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi þar eru flísar og dúkur á forstofu og í eldhúsi.
Frá forstofu er stigi niður í kjallara.  Komið er á gang en inn í kjallara eru tveir inngangar að utan.
Í kjallara eru 5 svefnherbergi, snyrting/geymsla, baðherbergi og þvottahús.
Öll herbergin eru í góðri stærð og þar af eitt sérstaklega rúmgott sem áður var notað sem stofa fyrir aukaíbúð.
Gólfefni: Harðparket er á herbergjum, flísar á baðherbergi og snyrtingu og málað gólf í þvottahúsi.
Það væri mjög auðvelt að útbúa 60 fm íbúð með sérinngangi og skiptist hún í forstofu, lítið herbergi, gott svefnherbergi með skápum, ágætt eldhús, stofu og flísalagt baðherbergi með sturtu.

Eignin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum að sögn seljanda; 2014 var skipt um þak og einnig voru raf-, vatns-, ofna- og frárennslislagnir endurnýjaðar. Árið 2016-17 var skipt um alla glugga og allt gler í húsinu. Húsið er timburhús með steyptum kjallara, klæðningin að utan er úr Asbesti.

Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Alfreð Valencia, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Karfavogur 18
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Karfavogur 18
Karfavogur 18
104 Reykjavík
219,2 m2
Raðhús
615
775 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbrún 56
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbrún 56
Heiðarbrún 56
810 Hveragerði
217,9 m2
Einbýlishús
54
711 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Fjóluás 4
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:10. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Fjóluás 4
Fjóluás 4
221 Hafnarfjörður
250,2 m2
Raðhús
614
679 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Furuás 25
Skoða eignina Furuás 25
Furuás 25
221 Hafnarfjörður
249,2 m2
Raðhús
624
642 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin