Fasteignaleitin
Skráð 22. júní 2026

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
110 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
526.364 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101220626
Landnúmer
0
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝ PARHÚS Í FALLEGUM SPÆNSKUM BÆ Á COSTA BLANCA*
*GÖNGUFÆRI VIÐ ÞJÓNUSTU OG AÐEINS 10-15 MÍNÚTNA AKSTUR Á STRÖNDINA*
Falleg og nútímaleg nýbyggð parhús í Daya Nueva, notalegum spænskum bæ á Costa Blanca þar sem kyrrð, lífsgæði og góð staðsetning eru aðal málið. Húsin eru einstaklega vel hönnuð með björtum opnum rýmum, stórum veröndum og einkabílastæði og henta jafnt sem heilsársbúseta, sumarhús eða fjárfesting.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  +354 893 2495.  adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali.  +34 615 112 869. berta@spanareignir.is.

FRÁBÆRT SKIPULAG

Húsin eru hönnuð með áherslu á nútímalegan lífsstíl þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og rúmgott opið alrými með góðri tengingu við útisvæðin.
Eignirnar bjóða upp á:
3 rúmgóð svefnherbergi
2 glæsileg baðherbergi
Bjarta stofu og borðstofu í opnu rými
Nútímalegt eldhús
Stórar og sólríkar verandir
Einkabílastæði á lóð
Möguleika á einkasundlaug
Vandaða og fallega hönnun

ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLL
Hér nýtur þú hins sanna Miðjarðarhafslífs með rúmgóðum útisvæðum sem henta fullkomlega fyrir samveru með fjölskyldu og vinum.
Rúmgóðar verandir með góðri sól
Einkabílastæði
Möguleiki á einkasundlaug
Göngufæri í verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu
Aðeins um 10-15 mínútna akstur að fallegum sandströndum Guardamar del Segura
Um 30 mínútna akstur frá Alicante-flugvelli

EFTIRSÓTT STAÐSETNING
Daya Nueva er heillandi spænskur bær sem er þekktur fyrir rólegt andrúmsloft, vinalegt samfélag og hefðbundinn spænskan sjarma. Þar er öll helsta þjónusta innan seilingar á sama tíma og stutt er í golfvelli, strendur og stærri bæi á Costa Blanca.
Þetta er fullkominn staður fyrir þá sem vilja njóta ekta spænsks lífsstíls í fallegu og afslöppuðu umhverfi en hafa jafnframt greiðan aðgang að allri nútímaþjónustu.

VERÐ
3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
Verð frá 399.900 evrum (ISK 57.900.000 miðað við gengi ein evra=145ISK) + kostnaður við kaupin.

ÖRUGG KAUP OG REYNSLA
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá árinu 2001 og bjóðum íslenskum kaupendum upp á örugga og faglega þjónustu frá upphafi til enda.

✔ Löggiltur íslenskur fasteignasali með full réttindi bæð á Íslandi og Spáni
✔ Aðstoð við fjármögnun hjá spænskum bönkum
✔ Aðstoð við skoðunarferðir
✔ Leiðsögn í gegnum allt kaupferlið

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

KOSTNAÐUR VIÐ KAUP
10% IVA (spænskur virðisaukaskattur)
Um 3% annar kostnaður vegna kaupa
Samtals um 13%

EIGINLEIKAR: Nýbygging, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, Einkabílastæði, Rúmgóðar verandir, Möguleiki á einkasundlaug, Göngufæri við þjónustu, Stutt í strönd, Vönduð hönnun,
SVÆÐI: Costa Blanca, Daya Nueva, Alicante, Spánn,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101220626

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126,5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 309
Baughamar 7 íb. 309
221 Hafnarfjörður
95,5 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 402
Bílastæði
Baughamar 5 íb. 402
221 Hafnarfjörður
116,2 m2
Fjölbýlishús
423
765 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8A íb. 502
Bílastæði
Apalskarð 8A íb. 502
221 Hafnarfjörður
97,8 m2
Fjölbýlishús
413
786 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin