ERGON kynnir eignina Engihjalli 19, 200 KópavogurFalleg og endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með rúmgóðum svölumTil sölu er björt og vel skipulögð 62,2 m² þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í átta hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðum svölum og verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum, meðal annars eldhús, baðherbergi og gólfefni.
Nánari lýsing eignar:Forstofa/hol: Rúmgóð forstofa með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús: Bjart og opið alrými með harðparketi á gólfi og útgengi á svalir. Eldhúsið var endurnýjað árið 2019 og er með fallegri innréttingu, ofni, spanhelluborði, viftu og innbyggðri uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp, góðri birtu frá stórum gluggum og útgengi á rúmgóðar svalir. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með stórum glugga, fataskáp og harðparketi á gólfi. Herbergið er skráð sem eldhús á samþykktri teikningu.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta. Upphengt salerni, sturta og góð baðinnrétting.
Geymsla og sameign: Sérgeymsla í sameign, skráð 4,2 m² samkvæmt teikningu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni, sem þrjár íbúðir deila. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð hússins.
Endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda:2019: Öll gólfefni endurnýjuð.
2019: Eldhús fært inn í stofu og endurnýjað, þar með talin innrétting, eldhústæki, vaskur og blöndunartæki.
2019: Baðherbergi endurnýjað, meðal annars flísar, innrétting og blöndunartæki.
2020: Gler í gluggum endurnýjað.
Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 62,2 m². Sérgeymsla er skráð 4,2 m² samkvæmt teikningu.
Björt og vel nýtt þriggja herbergja íbúð þar sem helstu innréttingar og gólfefni hafa verið endurnýjuð.
Húsið og staðsetningEngihjalli 19 er átta hæða fjölbýlishús, byggt árið 1979, með lyftu og virku húsfélagi. Unnið er að umfangsmiklum endurbótum á anddyri, fyrstu hæð og lyftu sem greiðast að fullu úr hússjóði.
Eignin er staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi. Stutt er í verslanir, skóla, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði Kópavogsdals. Góðar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu ásamt greiðum tengingum við almenningssamgöngur og helstu umferðaræðar.
Björt og vel nýtt þriggja herbergja íbúð á efstu hæð, með rúmgóðum svölu og útsýni til vesturs.Nánari upplýsingar veitirDavíð Ólafsson Lfs
í síma 7666633,
tölvupóstur david@ergon.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ergon fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.