Fasteignaleitin
Skráð 12. jan. 2025

Stafafellsfjöll 25 a

SumarhúsAusturland/Höfn í Hornafirði-781
58.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
25.000.000 kr.
Fermetraverð
430.293 kr./m2
Fasteignamat
20.250.000 kr.
Brunabótamat
29.700.000 kr.
Mynd af Snorri Snorrason
Snorri Snorrason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2010
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2321365
Landnúmer
188144
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Rafmagskynding
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Húsið er byggt 2010  úr 2  eldri vinnubúðum úr timbri sem haft er bil á milli og þak byggt yfir.
Mikið af framkvæmdum við byggingu hússins og lagningu á lögnum hafa verið unnið af eigendum sjálfum með aðstoð  og leiðbeiningum frá iðnaðarmönnum
 
FALLEGT SUMARHÚS Í STÓRBROTINNI NÁTTÚRU Í STAFAFELLSFJÖLLUM Í LÓNI HORNAFIRÐI.
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 588-4477 og Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími: 895-2115 eða snorri@valholl.is, kynna til sölu:
Fallegt og vel staðsett 58,1 fm sumarhús við Stafafellsfjöll 39A í Lóni í Hornafirði. Húsið er byggt árið 2010 úr timbri og stendur á 3.694 fm afgirtu leigulandi. Umhverfis húsið eru rúmgóðar verandir og frá eigninni er fallegt útsýni til fjalla.
Stafafellsfjöll í Lóni eru einstök náttúruperla í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Höfn í Hornafirði. Svæðið einkennist af stórbrotnu fjallalandslagi, fjölbreyttri litadýrð og einstakri náttúrufegurð. Þar eru fjölmargar fallegar gönguleiðir, meðal annars inn í Kollumúla yfir göngubrú á Jökulsá. Staðsetningin býður upp á mikla möguleika til útivistar og notalegrar dvalar í friðsælu umhverfi.
Húsið stendur á skjólsælum stað með góðu útsýni. Verandir eru umhverfis húsið og þakskegg nær vel út fyrir útveggi og yfir hluta verandanna. Á lóðinni er borhola fyrir neysluvatn og rotþró. Sambyggð húsinu er óeinangruð geymsla með sérinngangi.
Nánari lýsing eignar:
Stofa og eldhús: Bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús mynda notalega heild. Eldhúsinnrétting er með viðarfrontum og parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgóður sturtuklefi, hvít hreinlætistæki, innrétting og aðstaða með tengi fyrir þvottavél.
Svefnloft: Yfir hluta alrýmisins er svefnloft sem eykur nýtingarmöguleika hússins. Einnig eru geymsluloft yfir báðum svefnherbergjunum.
Geymsla: Sambyggð húsinu er óeinangruð geymsla með sérinngangi. Þar eru hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnstafla.
Rafmagn og fjarskipti: Í húsinu er 2 x 220 V rafmagnsheimtaug ásamt móttakara og beini fyrir internettengingu.
Verandir og lóð: Verandir eru allan hringinn í kringum húsið og skapa góða möguleika til útiveru. Þak nær yfir hluta verandanna. Lóðin er 3.694 fm, afgirt og húsið stendur í góðu skjóli með fallegu útsýni til fjalla.
Innbú: Samkomulag verður milli kaupanda og seljanda um hvaða innbú fylgir eigninni við sölu.
Lóðarleiga: Lóðin er 3.694 fm afgirt leigulóð. Árleg lóðarleiga samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er 41.326 kr., vísitölubundin miðað við mars 2009. Fyrirliggjandi lóðarleigusamningur rann út árið 2025 en seljandi mun sjá um gerð nýs lóðarleigusamnings fyrir kaupsamning.
Nánar um skipulag í Stafafellsfjöllum:
Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins frá 10.12.2014 eru skilgreindar 78 lóðir undir frístundahús. Á hverri lóð er heimilt að byggja allt að þrjú hús, eftir stærð og nýtingarhlutfalli lóðar.
Frístundahús eða aðalhús má vera allt að 120 fm og ekki minna en 30 fm. Aukahús eða gestahús má vera allt að 30 fm, þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Geymsla má vera allt að 25 fm.
Á lóðum sem eru 6.000 fm og stærri er leyfilegt byggingarmagn allt að 180 fm en á minni lóðum takmarkast byggingarmagn við nýtingarhlutfallið 0,03. Byggingarmöguleikar á hverri lóð eru háðir gildandi skipulagi og samþykki byggingaryfirvalda.
Vatnsöflun á svæðinu er á ábyrgð hvers lóðarhafa. Sorp skal setja í þar til gerðan gám við Jökulsárbrú.
Nánari upplýsingar um deiliskipulag Stafafellsfjalla frá 10.12.2014, nr. 12296, má finna hér:
http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=04635507136694766017
http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=04635507137078681216
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Í landi Bala
Á einni hæð
Skoða eignina Í landi Bala
Í landi Bala
246 Sandgerði
45,6 m2
Sumarhús
322
647 þ.kr./m2
29.500.000 kr.
Skoða eignina Hlíð 4
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíð 4
Hlíð 4
276 Mosfellsbær
47,1 m2
Sumarhús
312
741 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Valhnjúkasund 12
Á einni hæð
Valhnjúkasund 12
805 Selfoss
45,4 m2
Sumarhús
12
705 þ.kr./m2
32.000.000 kr.
Skoða eignina Lækjarbotnaland 43
Heitur pottur
Lækjarbotnaland 43
206 Kópavogur
50,1 m2
Sumarhús
312
988 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin