Helgafell fasteignasala, Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali og kynna í einkasölu Mosarima 11, 112 Reykjavík:Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngang í snyrtilegu fjölbýlishúsi. Birt stærð eignar er 79,1 fm. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði og á lóðinni eru næg bílastæði og hleðslustaurar fyrir fjóra bíla. Mjög góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, framhald-, grunn- og leikskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, sundlaug og íþróttamiðstöðina í Dalhúsum, verslunarmiðstöðina Spöngina, útvistarsvæðið í Gufunesi og mikið er af frábærum gönguleiðum í næsta nágrenninu.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, gang og geymslu innan íbúðar. Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.
Nánari lýsing eignar: Forstofa: Komið er inn um sérinngang, fatahengi, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, útgengi út á sólríkar og skjólgóðar suður svalir, parket á gólfi.
Eldhús: Með hvítri/viðar innréttingu, nýr bakarofn og spanhelluborð, vifta, uppþvottavél sem fylgir með, borðkrókur, opið inn í stofu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum/viðar fataskápum, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, dúkur á gólfi.
Baðherbergi / þvottahús: Endurnýjað 2022. Ný hvít innrétting, speglaskápur, sturta, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á veggjum að hluta og á gólfi.
Gangur: Úr forstofu er gengið inn í gang, parket á gólfi.
Geymsla: Er innan íbúðar, skápur, dúkur á gólfi.
Sameign: Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla og tæknirými.
Húsið: Mosarimi 9,11,13 og 15 er byggt 1994. Í húsinu eru 18 íbúðir.
Lóðin: Sameiginleg 2966 fm snyrtileg og vel við haldin lóð. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði og á lóðinni eru næg bílastæði og hleðslustaurar fyrir fjóra bíla. Göngustígur sem liggur á milli blokkanna er upphitaður.
Staðsetning: Smellið hér. Góð fjölskyldueign á góðum stað í Grafarvogi - Eign sem vert er að skoða - Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali í s. 697 6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.is.