Melgerði 13, Reyðarfirði: Um er að ræða vel skipulagða og mjög bjarta 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í snyrtilegu sex hæða lyftuhúsi sem ætlað er fyrir 55 ára og eldri. Eigninni fylgja góðar svalir sem snúa til vesturs ásamt frábærri sameign þar sem m.a. er aðgengi að gistiherbergjum og stóru þvottahúsi.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isEignin skiptist upp í forstofu/gang, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á jarðhæð er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Útgengt er úr stofu á 8,6m
2 svalir með afar fallegu útsýni inn fjörðinn. Íbúðin var öll nýmáluð í janúar síðastliðnum (að baðherbergi undanskildu) og er mjög snyrtileg.
Athugið að parket á íbúðinni hefur orðið fyrir vatnsskemdum við eldhúsinnréttingu og stendur til boða að fá eignina afhenta eins og hún er (og kaupandi endurnýjar/slípar parket) eða að seljandi láti skipta um gólfefni fyrir afhendingu.- Íbúð í lyftuhúsi fyrir 55 ára og eldri
- Félagsaðstaða í eigu sveitarfélagsins er í húsinu
- Hlutdeild í tveimur gistiherbergjum fyrir gesti
- Sameiginlegt þvottahús með tækjum
- Nýmáluð í janúar 2026
SKIPULAG EIGNAR:Forstofa/gangur: Parket á gólfi, fataskápur. Leiðir inn í önnur rými íbúðarinnar.
Stofa/borðstofa: Mjög bjart og opið rými með stórum gluggum og fallegu útsýni. Parket á gólfi og þaðan er útgengt á svalirnar sem snúa til vesturs.
Eldhús: Er í opnu rými við stofuna. Snyrtileg viðarinnrétting, flísar á milli skápa og ágætis vinnupláss.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parketlagt og með stórum og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2: Parketlagt og einnig með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta með góðri hvítri innréttingu og stórum spegli. Þar er handklæðaofn og fínn sturtuklefi með glerþili.
Geymsla: Sérgeymsla (6,7m
2) er staðsett á jarðhæð.
SAMEIGN:Íbúðinni fylgir mjög góð sameign. Í húsinu er hlutdeild í
tveimur gistiherbergjum með eldunar- og hreinlætisaðstöðu sem ætluð eru gestum íbúa. Á 1. hæð er einnig mjög gott og rúmgott
sameiginlegt þvottahús með þvottavélum og þurrkurum til afnota fyrir íbúa, ásamt góðri þurrkaðstöðu. Þá er á 2. hæð (götuhæð frá norðri)
félagsaðstaða fyrir eldri borgara í eigu sveitarfélagsins.
Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSkráning eignarinnar skv. HMS:Fasteignanúmer: F2286513
Stærð: Íbúð á hæð, 82,8 m² (þar af er geymsla 6,7 m²)
Byggingarár: 2005
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 35.250.000 kr.
Brunabótamat: 50.550.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 3054,2 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði