***VESTURGATA 155 - AKRANESI***
***SKIPTI Á MINNI EIGN KOMA TIL GREINA***
Prima Fasteignasala og Ólafur Sævarsson lögg.fasteignasali kynna: Gott 212,8fm einbýlishús að meðtöldum 36fm bílskúr.Eignin er á 2 hæðum og er í dag sett upp eins og tvær íbúðir en opið á milli. Auðvelt að hafa þær aðskildar þar sem það eru 2 inngangar í húsið. Eignin skiptist í 2 forstofur, 2 baðherbergi, stofu, borðstofu, 2 eldhús, þvottahús, hjónaherbergi og 5 góð herbergi. 36fm bílskúr með steyptu bílaplani fyrir framan
Nánari lýsing:
EFRI HÆÐ:
Forstofa: Flísar, fatahengi.
Hol: Parket, eldri skápur.
Stofa/borðstofa: Parket.
Baðherbergi: Málaðar flísar, flísar upp á vegg, baðkar, Skápur. gluggi á baðherbergi.
Eldhús: Parket, eldri innrétting sem hefur verið máluð. Borkrókur.
Hjónaherbergi: Parket með nýlegum fataskáp.
Herbergi: Parket, útgangur út á vestursvalir.
NEÐRI HÆÐ: Teppalagður stigi niður á 1.hæð.
Inngangur: (flísar).
Hol/gangur: Parket
Baðherbergi:
Eldhús: Nýleg eldhúsinnrétting með góðum tækjum. Borðkrókur.
Herbergi: Parket
Herbergi: Parket
Herbergi: Parket
Geymsla: Dúkur með góðum hillum. Gluggi á geymslu.
Þvottahús/baðherbergi: Málað gólf, walk in sturta, innrétting með vaski.
Útigeymsla undir útitröppum.
Bílskúr: Málað gólf, hiti, rafmagn, vatn, hurðaopnari, inngönguhurð á hlið.
Við hlið bilskúr er sólpallur með góðri grill aðstöðu.
ANNAÐ:
Málað og sprunguviðgert að utan 2020.
Parket á neðri hæð 2021.
Málað að innan 2021.
Endurnýjað gler og listar 2020.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Frárennslislagnir myndaðar 2015.
Steypt innkeyrsla m/hitalögn.
Verönd hjá bílskúr.
Endurnýjað járn á þaki 2008.
STUTT FRÁ FJÖLBRAUTA - OG GRUNNSKÓLA !
Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820-0303 / olafur@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.