Fasteignaleitin
Opið hús:30. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 28. apríl 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5D-íbúð 401

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
125.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
118.900.000 kr.
Fermetraverð
945.151 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530350_1_8
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sérafnotaréttur
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5D, Reykjavík -- íbúð 0401.  3ja herbergja endaíbúð íbúð 125,8fm. á fjórðu hæð, þar af geymsla 11,1fm. (merkt 0016).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B041 í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og annað þeirra innaf hjónaherbergi, ásamt fataherbergi.  Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar 
Svalir eru 25fm. við enda hússins með miklu útsýni.  Útsýni til sjávar frá stofu og eldhúsi.
Íbúðin er með aukinni lofthæð um 280cm.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa  með stórum fataskáp sem nær til lofts
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum og undirfelldum vaski.
Innbyggð tæki í innréttingu. 
Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar.
Baðherbergi með glugga,  flísalagt með 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Annað baðherbergi innaf hjónaherbergi er einnig með glugga og flísalagt sömu flísum.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísalagt gólf 60x60cm. flísar frá Ebson
Hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts 
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp sem nær til lofts
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar


Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2530350_1_8
Byggingarefni
steinn
Lind fasteignasala ehf
https://www.fastlind.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjarvað 4
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lækjarvað 4
Lækjarvað 4
110 Reykjavík
160.5 m2
Hæð
514
716 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hólavað 17
Bílskúr
Opið hús:02. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hólavað 17
Hólavað 17
110 Reykjavík
146.7 m2
Raðhús
514
767 þ.kr./m2
112.500.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 212
Bílastæði
Borgartún 24 212
105 Reykjavík
117.5 m2
Fjölbýlishús
413
935 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lindarbraut 14
Bílskúr
Skoða eignina Lindarbraut 14
Lindarbraut 14
170 Seltjarnarnes
155.4 m2
Hæð
514
829 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache