Fasteignasalan Torg kynnir: Mjög góð 3ja herbergja 90,4 fm íbúð á einum besta stað í Árbænum. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi.
Eldhús hefur verið endurnýjað, gólfefni, hurðir og fataskápar. Lóð er fallega gróin og vel búin leiktækjum fyrir börn.
Stutt er í alla þjónustu þ.m.t. heilsugæslu, verslun, skóla, leikskóla, íþróttasvæði og sundlaug.
Nánari upplýsingar veitir Þóra, fasteignasali í gsm: 8222225
Sækja söluyfirlit hérNánari lýsing:Forstofu með stórum fataskápum með rennihurðum og parket á gólfi.
Eldhús er með ljósri viðarlitri innréttingu, flísalagt milli skápa, góð tæki, parket á gólfi.
Stofa / Borðstofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi, útgengi á suð-vestur svalir.
Baðherbergi er með flisalagt gólf og veggi að hluta, lítil innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott, stór fataskápur með rennihurðum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi, fataskápur í holi.
Þvottahús er sameiginlegt í sameign þar sem hver er með tengi fyrir sína vél.
Geymsla er sér í sameign auk sameiginlegrar
vagna og hjólageymslu.Lóðin / bakgarður er fallega gróinn með góðu leiksvæði og tækjum fyrir börn.
Rúmgóð og vel skilpulögð íbúð á góðum stað í hverfinu, örstutt í verslun og þjónustu, skóla og leikskóla.
Öflugt íþróttastarf er í hverfinu og glæsileg sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir lögg.fasteignasaliFasteignasölunnar Torg sími 822-2225 eða thora@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.000,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 65.000,- með vsk.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.