Fasteignaleitin
Skráð 31. ágúst 2026

Rjúpufell 36

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
295.5 m2
9 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
115.900.000 kr.
Fermetraverð
392.217 kr./m2
Brunabótamat
121.450.000 kr.
Byggt 1974
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
205272591
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vel staðsett og vel skipulagt 272,4 fermetra 2ja íbúða raðhús á tveimur hæðum auk 23,1 fermetra bílskúrs við Rjúpufell í Reykjavík, samtals 295,5 fermetrar.

Annars vegar er um að ræða 204,3 fermetra íbúð á efri og neðri hæð og hins vegar er um að ræða 68,1 fermetra 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af framlóð hússins.

Stærri íbúðin skiptist þannig að á efri hæð hennar eru forstofa, hol, borðstofa, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa með útgengi á verönd. Á neðri hæð íbúðarinnar eru fjölskyldurými, stórt, gluggalaust herbergi, þvottaherbergi og geymslur.
Minni íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með gufubaði inn af, auk þvottaaðstöðu. Eignin þarfnast viðhald og tekur ásett verð mið af því.


Lýsing stærri íbúðar:
Forstofa, teppalögð og með fataskápum.
Hol, parketlagt og rúmgott og þaðan liggur góður viðarstigi niður á neðri hæð hússins.
Borðstofa, inn af holi er parketlögð. 
Barnaherbergi I, teppalagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II, dúklagt og með fataskápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fataskápum. 
Baðherbergi, nýlega endurnýjað að hluta, flísalagt gólf og veggir, innrétting, fastur spegill, djúpir skápar á vegg með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Eldhús, parketlagt og rúmgott með góðri borðaðstöðu og þakglugga yfir. Fallegar upprunalegar bæsaðar viðarinnrétingar með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt. 
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á skjólsæla verönd til suðurs og þaðan á lóð. 

Gengið er niður á neðri hæð stærri íbúðar um góðan viðarstiga úr holi og skiptist hún þannig:
Fjöldskyldurými / sjónvarpsstofa, málað gólf.
Stórt herbergi, gluggalaust, málað gólf og loftræsting.
Geymsla, málað gólf.
Þvottaherbergi, málað gólf og loftræsting.

Lýsing minni íbúðar:
Forstofa, flísalögð og með fatahengi.
Gangur, flísalagður.
Herbergi, stórt, parketlagt og með gluggum til norðurs.
Stofa, parketlögð og rúmgóð, með gluggum til norðurs.
Eldhús, flísalagt og með hvítum + beykiinnréttingum og lítilli borðaðstöðu.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, innrétting, fastur spegill, flísalögð sturta með sturtugleri, tengi fyrir þvottavél og saunaklefi.

Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Mótor er á bílskúrshurð. 

Húsið að utan virðist vera í nokkuð góðu ásatandi. Þakjárn er nýlega endurnýjað og þakkantur lítur vel út. Verið er að múrviðgera austurgafl raðhúsalengjunnar og til stendur að mála vesturgafl hennar.
Drenlagnir sunnan við raðhúsalengjuna eru nýlegar.

Staðsetning eignarinnar er góð á grónum og rólegum stað við Rjúpufell í Breiðholti þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu o.fl. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignamarkaðurinn ehf
http://www.fastmark.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðhöfði 17
IMG_8412.JPG
Skoða eignina Breiðhöfði 17
Breiðhöfði 17
110 Reykjavík
89.7 m2
Fjölbýlishús
312
1002 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbrún 12
Bílskúr
Skoða eignina Vesturbrún 12
Vesturbrún 12
104 Reykjavík
276.5 m2
Hæð
715
778 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Opið hús:31. ágúst kl 17:00-17:45
S1 og S2 - Takki - ekki svalalokun - 9 ap 2026.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
413
939 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:31. ágúst kl 17:00-17:45
S1 og S2 - Takki - ekki svalalokun - 9 ap 2026.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
169.6 m2
Fjölbýlishús
524
913 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin