Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 84,7 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi við Kjarrhólma 30 í Kópavogi. Suðursvalir. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla og þurrkherbergi.
Nánari uppl. veita: Alfreð B. Valencia lg. fasteignasali s. 776-2150 alfred@eignamidlun.is og Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511.Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofu með nýlegum skápum.
Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa sem stórum gluggum. Fallegt útsýni.
Eldhús: Eldhúsið er opið að hluta til inn í stofuna. IKEA innrétting í eldhúsi sem var endurnýjuð fyrir um 15 árum síðan. Innbyggð uppþvottavél. Nýlegur ofn og háfur úr stáli. Borðkrókur er í eldhúsi. Gólf er flísalagt.
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi með skápum. Svalir til suðurs eru útaf hjónaherbergi.
Barnaherbergi: Parketlagt herbergi með nýlegum skápum.
Baðherbergi: Baðherbergið hefur verið standsett. Gólf er flísalagt. Baðkar með sturtu í.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðarinnar. Vinnnuborð er í þvottahúsi og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Stigagangur hefur nýlega verið málaður og sett ný teppi.
Framhlið hússins var viðgerð og máluð árið 2026. Á bílaplani er búið að setja upp sameiginlegar hleðslustöðvar.
Frábær staðsetning við Fossvogsdal. Stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, fallegt útivistarsvæði og helstu þjónustu. ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook