Íbúðaeignir og Halldór Már löggiltur fasteignasali og leigumiðlari kynna TIL LEIGU mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með suður svölum. Eldhús og baðherbergi hefur verið endurnýjað. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Innréttignar og tæki í eldhúsi og baðherbergi voru endurnýjuð 2016 ásamt nýju gólfefni. Rafmagn hefur verið endurnýjað að miklu leyti, nýjir vírar dregnir í veggi og loft, nýjir tenglar, ný öryggi í rafmagnstöflu og sér tafla í eldhúsi. Gluggar hafa verið endurnýjaðir að stærstum hluta. Þá hafa allir ofnar verið endurnýjaðir.
2019 og þá voru settar upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 84,5 fm.Nánar um eignina:Anddyri/hol tengir saman önnur rými parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél og ísskápur og flísar á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með góðu útsýni og parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni.
Hjónaherbergi með rúmgóðum upprunalegum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi, handklæðaofn, flísalagðir 1/2 veggir og flísar á gólfi.
Gangur við baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara, efri skápar og parket á gólfi.
Geymslur íbúðar er í kjallara og geymsluskápur. Þetta eru 3 geymslur, ein nokkuð venjuleg, kartöflugeymsla og yfirhafnageymsla.
Þvottahús er í sameign í kjallara hússins. Einnig er þar þurrkherbergi.
Í sameign í kjallara er
hjóla- og vagnageymsla. Hér er um að ræða vel skipulagða 4ja herbergja íbúð auk bílskúrs á mjög góðum stað í Vestubænum þar sem leik-,grunnskóli og háskóli eru í næsta nágrenni. Búið er að breyta íbúðinni í 3ja herbergja íbúð en einfalt er að bæta aftur við herbergi með því að setja upp léttan millivegg. Einnig er stutt í ýmsa verslun og þjónustu eins kjörbúð, kaffihús, bakarí og sundlaug Vesturbæjar.
Allar upplýsingar um eignina veitir:Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma
898 5599 eða
halldor@ibudaeignir.is