Fasteignaleitin
Opið hús:17. sept. kl 17:00-17:45
Skráð 14. nóv. 2025

Bræðraborgarstígur 24

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
80.7 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.500.000 kr.
Fermetraverð
1.096.654 kr./m2
Fasteignamat
78.050.000 kr.
Brunabótamat
46.850.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1906
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001119
Landnúmer
100374
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Lóð
63,91
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Á íbúð (0001) hvílir sú kvöð að "íbúar eignar (0101) verða að hafa aðgang að vatnsinntaki fyrir íbúð (0101) sem staðsett er í íbúð (0001) í herbergi við hliðina á inntaksklefa, ef þeir þurfa að geta skrúfað fyrir vatnið". Ekki er vitað um neinar kvaðir á lóð.
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna 80.7 fm (Nettó gólflötur eignar er 92,8fm skv. fasteignaskráningu.), 5 herbergja hæð og ris með sérinngangi ásamt sérmerktu bílastæði í tvíbýlishúsi vinsælum stað í gamla Vesturbænum. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, geymslurými undir stiga, eldhús, samliggjandi borðstofu og stofu á aðalhæð. Aukin lofthæð er á aðalhæðinni og falleg gluggasetning. í risi eru 2 barnaherbergi, gangur og geymsla undir súð.

Húsið stendur á fallegri og gróinni 227,1fm eignarlóð. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Fyrir aftan hús er sameiginlegur sólríkur garður með sameiginlegri viðarverönd. Í garði er kaldur, timbur geymsluskúr sem tilheyrir efri hæðinni skv. hefð og er ekki skráður inn í birta fermetratölu eignarinnar. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Staðsetningin eignarinnar er ákaflega eftirsóknarverð, enda sameinar hún sjarma og ró gamla Vesturbæjarins við líf og þægindi miðborgarinnar. Þá er Grandinn og gamla höfnin stutt undan. Skólar á öllum stigum í nágrenninu ásamt fjölbreyttu tómstundar- og íþróttastarfi. Öll helsta verslun og þjónusta í nánasta nágrenni.


Eignin Bræðraborgarstígur 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-1119, birt stærð 80.7 fm. Nettó gólflötur eignar er 92,8fm skv. fasteignaskráningu.

Framkvæmdir undanfarinna ára:
2019:
Hitagrind tekin í gegn (ofnakerfi) 
2020: 
Hús málað að utan og múrviðgert.
Lagnir myndaðar. Plastlagnir í fínu lagi. Lögn frá lóðarmörkum út í götu fóðruð við samskeyti. 
2021:
Þakrennur endurnýjaðar.
2026:
Skipt um þakjárn og pappa ásamt því að setja öndunarrör og skipta út stórum hluta af þakvið.

Eignin skiptist í:
Aðalæð: Anddyri, baðherbergi, geymsla undir stiga, hjónaherbergi, samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa.
Rishæð: 2 barnaherbergi, gangur, leikherbergi / geymsla.

Nánari lýsing eignarinnar:
Hæð:
Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Flísar á gólfi, fatahengi. Stigi úr forstofu upp í rishæð.
Baðherbergi: Uppgert fyrir um 10 árum. Flísar á gólfi og stórum hluta veggja. Upphengt salerni, baðkar með sturtu, handklæðaofn, vaskur og spegill fyrir ofan vask. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Innbyggður skápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum opnum fataskáp.
Eldhús: Falleg upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi. Samliggjandi borðstofu.
Borðstofa: Samliggjandi eldhúsi og stofu.
Stofa: Samliggjandi og opin inn í borðstofu. 

Ris:
Barnaherbergi I: Viðarplankar á gólfi, rennihurð.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi, stór gólfflötur. Nýtist vel sem barnaherbergi.
Leikstofa / geymsla: Undir súð. Lofthæð í hæsta punkti ca. 175cm. Opin og nýtt í dag sem leikstofa.

Lóðin er 227,1 m² eignalóð við Bræðraborgarstíg 24 í Reykjavík, á lóðinni stendur mhl. 01 við Bræðraborgarstig 24. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Kaldur viðarskúr stendur á vesturenda í garði og tilheyrir hann efri hæð skv. hefð.

Sameign allra Í matshluta 01 er í sameign allra, inntök (0002) tröppur (0003) og sorp (0004) í kjallara, einnig tröppur (0102) á fyrstu hæð. Einnig er í sameign allra allt ytra byrði hússins. Eignahlutar skiptast eftir hlutfallstölu sameignar allra. Eignahlutfall eignar er 63,91%.

Hita og rafmagnskostnaður Í húsinu er einn hitamælir og skiptist kostnaður eftir hlutfallstölu hitakostnaðar. sameignarrými (0002) er ekki upphitað, geymsla (0201) er ekki upphituð. Hitamælir er staðsettur í inntaksklefa (0002). Íhúsinu eru tveir rafmagnsmælar þ.e. einn fyrir hvora séreign.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/06/202678.050.000 kr.59.000.000 kr.80.7 m2731.102 kr.
21/12/202046.350.000 kr.52.500.000 kr.80.7 m2650.557 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kolagata 2
Skoða eignina Kolagata 2
Kolagata 2
101 Reykjavík
84.5 m2
Fjölbýlishús
311
Fasteignamat 95.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Reykjastræti 7 (214)
móa_vefur (18).png
Reykjastræti 7 (214)
101 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
211
1266 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 2 (311)
móa_vefur (8).png
Skoða eignina Kolagata 2 (311)
Kolagata 2 (311)
101 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
322
1286 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Fálkagata 5
móa_vefur (1).jpg
Skoða eignina Fálkagata 5
Fálkagata 5
107 Reykjavík
73.9 m2
Fjölbýlishús
312
946 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin