Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: *** LÖGBÝLI - 4,3 hektarar - Glæsilegt einbýlishús ásamt aukaíbúð, bílskúrs/verkstæðis, fjárhúss auk byggingarleyfis - Mikil tækifæri ***
Um er að ræða afar áhugaverða og vel uppbyggða eign á einstökum stað í Bláskógabyggð, rétt við Brúará og í stuttri akstursfjarlægð frá Reykholti, Skálholti, Laugarvatni, Apavatni og öðrum vinsælum áfangastöðum á Gullna hringnum.
Eignin stendur á 4,3 hektara eignarlóð og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Á lóðinni er glæsilegt íbúðarhús byggt árið 2017, rúmgóð útihús, stórt verkstæði/bílskúr og eldri hlaða þar sem innréttuð hefur verið fjögurra herbergja íbúð. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er íbúðin ekki skráð í fasteignaskrá. Þá liggja fyrir upplýsingar um mögulegan byggingarrétt fyrir frekari uppbyggingu, sem getur aukið framtíðarmöguleika eignarinnar. Eignin Hóll er skráð lögbýli og nýtur þ.a.l. þeirrar þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á eins og sorphirðu, skólaþjónustu og snjómoksturs. Föst skrásetning er því leyfð.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Nánari lýsing:
Íbúðarhúsið er vandað og vel skipulagt með björtu alrými, fallegu eldhúsi með eyju, rúmgóðum svefnherbergjum og stórum gluggum sem veita gott útsýni yfir sveitina. Stór timburverönd með heitum potti og skjólgóð útiaðstaða skapa eftirsóknarvert umhverfi til útivistar og samveru.
Forstofa. Flísar á gólfi og góðir fataskápar.
Gangur. Parket á gólfi.
Alrými. Afar gott og mikið alrými sem er 48,4m2 að stærð.
Eldhús. Opið og fallegt flísalagt eldhús með góðu skápaplássi og gluggum. Innréttingin er hvít háglans í bland við fallegan við. Uppþvottavél og ísskápur eru innréttuð og fylgja þ.a.l. með eigninni. Bakaraofn í vinnuhæð. Span helluborð og stór loftgleypir.
Stofa. Björt og rúmgóð stofa. Parket á gólfi.
Borðstofa. Björt og rúmgóð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi. Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu með skápum og parketi á gólfum.
Þvottahús. Flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavélar. Skápar og skolvaskur. Sturta. Útgangur út á fallega verönd þar sem stutt er í heita pottinn.
Verönd. Stór og vel smíðuð verönd er í kringum húsið með heitum potti og fallegu útsýni til suðurs og vesturs.
Gestaíbúð.
Hlaða. Innréttuð sem afar vönduð, fullbúin og vel innréttuð 69m2 fjögurra herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum, stofu, baðherbergi og eldhúsi. Íbúð þessi er tilvalin sem aukaíbúð fyrir gesti.
Útihúsin auka nýtingarmöguleika eignarinnar verulega og henta meðal annars til geymslu, verkstæðisreksturs, smábúskapar eða annarrar atvinnustarfsemi.
Fjárhúsið þarfnast endurnýjunar á þakjárni samkvæmt upplýsingum eigenda, en burðarvirki þess eru sögð vera í góðu ástandi.
Staðsetning eignarinnar telst einn helsti kostur hennar. Skammt er í helstu þjónustu og vinsæla ferðamannastaði á Suðurlandi, auk þess sem náttúra og útivist eru í næsta nágrenni. Slík staðsetning eykur aðdráttarafl eignarinnar bæði fyrir þá sem leita að varanlegu heimili og þá sem sjá tækifæri til útleigu eða annarrar tekjuöflunar.
Í heild er um að ræða vandaða og fjölbreytta eign með sterka markaðsstöðu. Samspil staðsetningar, stærðar lóðar, góðs ástands mannvirkja, tveggja íbúðareininga, útihúsa og mögulegrar frekari uppbyggingar gerir eignina að eftirsóknarverðum kosti á markaði fyrir lífsstílseignir og lögbýli.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra