BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LAGARÁS 6, 700 Egilsstaðir. Tveggja herbergja íbúð í kjallara í fjögurra íbúða húsi miðsvæðis á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt byggt árið 1968. Eignin skiptist í íbúð í kjallara 66.1 m², anddyri 8.6 m² og geymslu 8.5 m² samtals 83.2 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri/inngangur, gangur, stofa, eldhús, herbergi og baðherbergi.
Í sameign: Sér geymsla, þvottahús og hitakompa.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing: Anddyri/inngangur, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur, þaðan er innangengt í íbúð og í geymslur.
Gangur, plastparket á gólfi, tvöfaldur fata-/geymsluskápur.
Eldhús, Nýleg eldavél og vifta, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, borðkrókur, plastparket á gólfi.
Stofa er inn af eldhúsi, plastparket á gólfi, möguleiki er á að stúka þar af herbergi.
Herbergi, dúkur á gólfi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi, handlaug, veggskápur og spegill, salerni og sturta, málað gólf er í sturtu, hluti veggja í sturtu er dúklagður.
Í sameign er
sér geymsla, dúkflísar á gólfi, hillur.
Sameiginlegt þvottahús, flísar á gólfi, pláss fyrir eina vél (tengt rafmagni íbúðar), stálvaskur í borði, gluggi.
Lagarás 6 þrjár hæðir, steinsteypt byggt árið 1968. Fjórar íbúðir eru í húsinu, ein í kjallara, tvær á miðhæð og ein á efstu hæð.
Hellulagt er framan við húsið með náttúruhellum, steyptar tröppur liggja niður í kjallara. Skipt hefur verið um glugga jafn óðum og hefur þurft. Þak var lagfært árið 2017 og settur hitaþráður í rennur 2019. Húsið var málað að utan árið 2018.
Lóð er gróin sameiginleg 702.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamingur til 50 ára frá 12.3.1968,
lóðarleigusamningur er útrunnin. Lóðarleigusamingur verður endurnýjaður á kostnað eiganda eignarinnar. Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5823. Lagarás 6, Múlaþing.Stærð: Íbúð 83.2 m².
Brunabótamat: 36.150.000 kr.
Fasteignamat: 28.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 34.800.000 kr.
Byggingarár: 1968.
Byggingarefni: Steypa
Eignarhald:
01.2 Séreign. Rými
01.0001 Íbúð í kjallara 66.1 Brúttó m².
01.0002 Anddyri 8.6 Brúttó m². 01.0003 Geymsla 8.5 Brúttó m².
01 X Sameign allra 8 Brúttó m².