Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20Íbúð 0201 er glæsileg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 2. hæð, samtals 136,4 fm, þar af er íbúðin 129,3 fm og sérgeymsla 7,1 fm. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, forstofu, gang og rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt sérgeymslu.Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með rúmgóðu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og opið rými. Stórir gluggar tryggja góða birtu og skapa skemmtilega tengingu við svalir íbúðarinnar.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, þar af er hjónaherbergi 15,8 fm, auk tveggja herbergja sem eru 10,2 fm og 8,9 fm. Tvö fullbúin baðherbergi fylgja íbúðinni og inn af forstofu er jafnframt sér þvottarými.
Íbúðin er afhent með vönduðum innréttingum frá Voke3 – White sem gefa eigninni fallegt og tímalaust yfirbragð.
Íbúðin er á 2. hæð með rúmgóðum svölum sem snúa til suðvesturs og bjóða upp á góð birtuskilyrði, skjólsælt útisvæði og fallegt útsýni.Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.
Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.