Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2026

Laugavegur 170 íb 512 - Heklureitur

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
136.7 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
1.352.597 kr./m2
Fasteignanúmer
25364811
Húsgerð
Fjölbýlishús

Eignamiðlun kynnir:

Haganlega hönnuð þriggja herbergja íbúð þar sem er möguleiki að bæta við aukaherbergi. Á þaksvölum er tengi fyrir heitan pott. Íbúðinni fylgir tvö einkastæði í bílakjallara og rúmgóð geymsla uppá 10,4m2 af birtum fermetrum. 

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson, lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 899-8815 eða kari@eignamidlun.is

Einstök íbúð fyrir þá sem njóta þess að búa til mat því að innan af eldhúsinu er búr með vaski og plássi sem má innrétta t.d fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Hjónasvítan hefur fataherbergi ásamt baðherbergi. Tvö svefnherbergi eru á teikningunni en einnig gefur þessi rúmgóða íbúð möguleika á því að bæta við aukaherbergi. Smekkleg íbúð fyrir kröfuhart fólk.
  • Birt stærð: 136,7 m2 
  • Þar af geymsla:10,4 m2
  • Herbergi: 3-4
  • Einkastæði:B53, B63
  • Þakgarður 44,2 m2
**Sækja söluyfirlit**

**Skoða heimasíðu verkefnis**


Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum og einnig verða vélræn loftskipti í þeim sem tryggir aukin loftgæði. Hafstudio og Studio Homestead komu að hönnun innréttingannna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra og munu kaupendur hafa tækfæri á að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergjum. Íbúðirnar hafa einstakt útsýni til fjallahringsins og yfir borgina.

Í eldhúsinu verður eyjan, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar stórglæsilegum og vönduðum tækjum frá Siemens. Þau koma úr studioLine línunni sem að býður úrval glæsilegra tækja sem gera matreiðsluna sérlega þægilega og ánægjuríka. Úrvalstæki þar sem gott jafnvægi ríkir á milli nýjunga og stílhreinnar hönnunar sem er óháð tíð og tíma. Á baðherbergjum verða blöndunartækin innbyggð með gun metal lit. Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar.

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Afhending miðast við haust 2026

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 kjartan@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson 864-5464 gudlaugur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson 899-8815 kari@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 gunnarbergmann@eignamidlun.is
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 brynjar@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 rognvaldur@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson 867-0968 unnar@eignamidlun.is 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 101
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam003.jpg
Hafnarbraut 10a - 101
200 Kópavogur
66.8 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
68.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 21
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Huldubraut 21
Huldubraut 21
200 Kópavogur
223.3 m2
Einbýlishús
524
828 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1 - íbúð 501
Valshlíð 1 - íbúð 501
102 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
130.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin