Glæsileg og sérlega vönduð 111 fm íbúð á fyrstu hæð í nýlegu húsi í Vogahverfinu í Reykjavík. Vandaðar ítalskar innréttingar, þrjú svefnherbergi, yfirbyggðar svalir, þvottahús innan íbúðar, rúmgóð verönd með heitum pott, sér stæði í bílageymslu. Húsið er klætt að utan og er því viðhaldslítið.
Eignin er skráð skv. HMS alls 111 fm. og þar af er geymsla 4,2 fm. Auk þess er flísalögð verönd sem er 22 fm og yfirbyggðar svalir 8,4 fm.
Bílastæði í bílastæðahúsi sem er ekki inn í uppgefnum fermetrum.
Alls 119,4 fm með yfirbyggðum svölum meðtöldum.Skoðaðu eignina í 3D hér.Nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is
Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.isNánari lýsing eignar:Forstofa rúmgóð með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa stór og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni sem eru yfirbyggðar, flísar á gólfi. Einnig er útgengt út á sérverönd sem er flísalögð með heitum pott.
Eldhús er opið við stofu. Falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp með frysti, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir, kvarststeinn á borðum.
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp.
Svefnherbergi I rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi II rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi með innangengri sturtu, reyklitað sturtugler, falleg innrétting, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvotthús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara auk skápa fyrir ofan.
Geymsla innan íbúðar auk sér geymslu í sameign.
Gólfefni á íbúðinni er vínylparket á öllum rýmum nema flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Á verönd og á svölum er uppstólað flísakerfi með fallegum flísum.
Í sameign er sér 4,2 fm geymslu auk hjóla og vagnageymslu. Sér bílastæði í bílageymslu. Ofan á bílageymslu er sameignlegur garður með gróðri og leiktækjum. Sameignin er einstaklega snyrtileg.
Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum stéttum, sameiginlegum fallegum garði með leiktækjum. Lokanlegu hliði hefur verið komið fyrir við útgang garðsins, sem gerir hann einstaklega barnvænan og öruggan.
Annað: · Vandaðar ítalskar innréttingar í eldhúsi, forstofu, svefnherberjum, baðherbergi og þvottaherbergi frá ítalska framleiðandanum Gili Creation
· Veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og eyjuháfur eru frá AEG.
· Flísar frá ítalska framleiðandanum Gili Creation
· Vínylparket frá Gólfefnaval
· Silestone kvartsteinn á borðum
· Á svölum og verönd er uppstólað flísakerfi frá Álfaborg
· Svalalokun er opnanleg, frá Járn og Gler, sett upp árið 2024.
· Gólfhiti og gólfsíðir gluggar
· Heitur pottur er Husky rafmagnspottur frá Arctic Spas. Rafmagnskostnaður vegna pottsins er mjög lítill.
· Snjalllásakerfi frá Brafa hefur verið sett upp fyrir íbúðina, bílskúrshurð, útihurð inn í sameign og inngang að bílastæðum.
Nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is
Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.is