Berg fasteignasala kynnir:59,9 fm. tveggja herb. íbúð á 2. hæð í 3ja. hæða fjölbýli við Hraunbæ 196 í Reykjavík.Komið er í
anddyri með eikarparketi. Til vinstri er
stofa með útgengi á svalir í vestur. Eikarparket á gólfi. Opið í
eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu og eldhústækjum. Span eldavélarborð. Snyrtilegur frágangur.
Rúmgott svefnherbergi með eikarparketi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa .
Sér geymsla fylgir eigninni í kjallara. Þar er einnig
sameiginlegt þvottahús með flísum á gólfi.
Sameiginleg hjólageymsla, einnig með flísum. Sameiginlegur og mjög snyrtilegur garður, með trjám og runnum. Leiktæki fyrir börnin og fallegar grasflatir. Hiti er í stéttum. Framan við húsið
eru næg bílastæði og góð aðkoma að húsinu. Rólegt og friðsælt hverfi. Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags eru fyrirhugaðar framkvæmdir og hefur ástandsskírsla verið unnin af Verksýn ehf. sem liggur fyrir.
Allar nánari uppl. hjá Pétri s. 897-0047 eða petur @berg.is