Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Eystri-þurá 1

Jörð/LóðSuðurland/Ölfus-816
394.4 m2
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
239.000.000 kr.
Fermetraverð
605.984 kr./m2
Brunabótamat
117.550.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
221135515
Húsgerð
Jörð/Lóð
Inngangur
Sérinngangur

Einstakt tækifæri til að eignast jörðina Eystri Þurá 1 sem staðsett er 5 km suðvestur af Hveragerði.  Á jörðinni er talsverð trjárækt, gott beitiland og um 7 hektarar af túnum sem hafa verið slegin á hverju ári. Það land sem um ræðir er neðan við þjóðveg 38 og nær niður að Þorleifslæk.  Alls eru það um 41 hektarar í séreign, auk þess er helmings eign í 25 hektara spildu.

Jörðin er í 40 km akstursfjarlægð frá Rauðavatni og gæti hentað vel hestamönnum, þeim sem hafa hug á að byggja upp ferðaþjónustu eða þeim sem vilja búa rétt fyrir utan borgina í fögru umhverfi.
Ef áhugi er fyrir því að eignast meira land er möguleiki á því.  Það land er  fyrir ofan við þjóðveg 38 en það eru 7 hektarar í skiptu og um 90 hektarar í óskiptu.
Húsakostur:
Fallegt og mikið endurnýjað 208 fm einbýlishús stendur á jörðinni.  Upprunalega var það byggt 1925 en er mikið endurnýjað og síðan byggt við það 2002.  Húsið stendur hátt og er reisulegt.  Á jörðinni er 117 fm hlaða sem var endurbyggð árið 2000 ásamt óinnréttuðu 69 fm hesthúsi (sambyggt). Íbúðarhús er hitað með varmadælu (loft í vatn)  en útihús er óupphitað.
Þuráará rennur skammt frá hlaðinu og á jörðinni er talsverð trjárækt sem veitir gott skjól.  Jörðin á veiðirétt í Þorleifslæk en hann er leigður af veiðifélagi.

Íbúðarhús:
Komið er inn í rúmgott anddyri, náttúrusteinn á gólfi. Innaf er baðherbergi og geymsla.  Eldhús er mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu, þar er einnig borðstofa. Stofa og sólstofa taka við, náttúrusteinn á gólfum. Annað baðherbergi og þvottahús eru einnig á neðri hæð.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi ásamt litlu baðherbergi. 
Háaloft sem nýtist vel sem geymsla eða svefnloft en reiknast ekki inn í fermetratöluna.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason as@hofdi.is, Gsm 8953000.- 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tildra lóðir
Skoða eignina Tildra lóðir
Tildra lóðir
801 Selfoss
Jörð/Lóð
6.500.000 kr.
Skoða eignina Skagamýri 8
Skoða eignina Skagamýri 8
Skagamýri 8
805 Selfoss
Jörð/Lóð
Fasteignamat 9.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Súlur Íbúðahúsalóðir
Súlur Íbúðahúsalóðir
803 Selfoss
Jörð/Lóð
8.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrarsel 5
Mýrarsel 5.jpg
Skoða eignina Mýrarsel 5
Mýrarsel 5
816 Ölfus
395 m2
Einbýlishús
826
66 þ.kr./m2
25.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin