Opið hús:21. feb. kl 14:00-14:30
Skráð 17. feb. 2026

Lágaberg 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
187.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
138.900.000 kr.
Fermetraverð
739.223 kr./m2
Fasteignamat
117.100.000 kr.
Brunabótamat
102.800.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1982
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2051333
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunarlegir málaðir timburgluggar
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður og austur svalir
Lóð
100
Upphitun
Ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Svefnherbergi í kjallara er skráð sem geymsla á teikningu. Rými í kjallara er óskráð og ósamþykkt og er lofthæð þar um 2 metrar.
Valhöll kynnir fallegt, vel skipulagt og bjart 187,9 fermetra einbýlishús með innangengum bílskúr á gróðursælli lóð, steinsnar frá fallegri náttúru. Til viðbótar við skráða fermetra er óskráð rými í kjallara sem telur um 70 fm (lofthæð um 2 m) með baðherbergi sem nýtist vel sem tómstudarrými, geymsla ofl. Alrými hússins er bjart með glugga á þrjá vegu og mikilli lofthæð. Svalir eru L-laga í suðurvestur og suðaustur með fallegu útsýni. Glæsilegur garður með stórri og skjólsælli viðarverönd til suðurs með skjólveggjum. Stór hellulögð bílastæði á framlóð með hitalögnum undir. Um er að ræða sannkallað fjölskylduhús með 4 svefnherbergjum tveimur baðherbergjum og stóru tomstundar- og eða geymslurými.

Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is


Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er íbúðarhlutinn skráður 157 m2 auk 30,9 m2 bílskúrs, alls 187,9 m2. Auk þess eru um 70 m2 óskráð rými í kjallara.

Lýsing eignar:
Efri hæð hússins skiptist í tvo palla, er skráð 132 m2 að stærð og skiptist þannig:
Forstofa: flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Hol: er bjart og opið upp í alrými. Flísar á gólfi. Inn af holi er sjónvarpsrými. Gengið út á stóra skjólsæla suðvestur timburverönd og þaðan út í fallegan og gróinn garð.
Hjónaherbergi: parketlagt og rúmgott með góðum fataskápum. Góð lofthæð.
Baðherbergi: er með glugga og mjög rúmgott. Gólf og veggir flísalagt. Bæði baðkar og sturta. Hvít innrétting og tveir vaskar.
Svefnherbergi II: er parketlagt og með fataskáp.
Svefnbergi III: parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Gengið er upp í alrými af tveimur stöðum.
Alrými: samanstendur af stofu og borðstofu og eldhúsi. Parket á gólfi. Bjart og opið rými með glugga á þrjá vegu og mililli lofthæð. Gengið er út á L-laga svalir.
Eldhús: er með L laga snyrtilegri viðarinnréttingu og eldunareyju. Steinn á borðum.
Búr/þvottahús: stendur við eldhús. Gluggi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með neðri skápum og vaski.

Neðri hæð hússins er skráð 55,9 m2 að stærð og skiptist þannig:
Úr gangi á neðri hæð er gengið inn í geymslu/þvottahús, svefnherbergi og bílskúr.
Svefnherbergi IV er mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður (30,9 m2) með gluggum, innganghurð, heitu og köldu vatni, vaski og vinnuborði. Epoxi á gólfi. Bílskúrshurð er nýleg með rafdrifnum hurðaopnara.
Hægt er að ganga niður í óskráð kjallararými (um 70 fm) bæði úr svefnherbergi og bílskúr. Þar hefur verið sett upp baðherbergisaðstaða með sturtu. Kjallararýmið er að miklu leyti opið en þó með millivegg.

Lóðin er 698 m2 að stærð með hellulagðri innkeyrslu og gesta bílastæðum. Hitalagnir eru undir hellulögn sem nær að innganghurð bílskúrs. Útitröppur eru steyptar með hitalögnum undir. Á baklóð hússins er stór viðarverönd til suðurs. Garðurinn er einstaklega fallegur og hefur verið haldið vel við í gegnum árin.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í aðeins fimm mínútna ganga í náttúruparadísina í Víðidal/Elliðaárdal þar sem finna má frábæra skógarstíga, göngustíga og hjólastíga. Grunnskólar hverfisins eru Hólabrekkuskóli og Fellaskóli og leikskólar hverfisins eru sex talsins. Ýmis þjónusta, verslanir og veitingastaðir sem eru skammt frá. Heilt yfir er um að ræða fallegt og vel skipulagt einbýlishús í eftirsóttu hverfi að ræða.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturberg 41
Bílskúr
Skoða eignina Vesturberg 41
Vesturberg 41
111 Reykjavík
206 m2
Raðhús
715
621 þ.kr./m2
128.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 85
3D Sýn
Skoða eignina Vesturberg 85
Vesturberg 85
111 Reykjavík
210.4 m2
Fjölbýlishús
614
646 þ.kr./m2
136.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (201)
Opið hús:22. feb. kl 15:00-15:30
0S6A2067.jpg
Eirhöfði 7a (201)
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 19 neðri hæð
Opið hús:22. feb. kl 13:30-14:00
Eiríksgata 19 neðri hæð
101 Reykjavík
133.2 m2
Fjölbýlishús
523
990 þ.kr./m2
131.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin