Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Þorraholt 13B

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
53.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.500.000 kr.
Fermetraverð
1.066.790 kr./m2
Fasteignamat
25.800.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541247
Landnúmer
234799
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 2ja herbergja íbúð við Þorraholt 13B í Garðabæ með svölum til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 13B í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.


Íbúð 209: Er glæsileg 53,9 fermetra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum til suðurs. Geymsla fylgir íbúðinni sem er 5,1 fermetrar að stærð. Afhending er í september/október 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi sem er opið við stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Útgengi á svalir til suðurs frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is


ATH: Ljósmyndir og tölvumyndir endurspegla ekki innra skipulag þessarar íbúðar og eru einungis til þess að átta sig á innréttingum, tækjum o.s.frv.

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/06/202625.800.000 kr.57.500.000 kr.53.9 m21.066.790 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 43
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 43
Holtsvegur 43
210 Garðabær
147.7 m2
Fjölbýlishús
422
785 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 1
Bílastæði
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Brekkugata 1
Brekkugata 1
210 Garðabær
108.3 m2
Fjölbýlishús
413
812 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
74.6 m2
Fjölbýlishús
312
709 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 401
Baughamar 5 íb. 401
221 Hafnarfjörður
68.4 m2
Fjölbýlishús
211
934 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin