Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Sólvangsveg 3, íbúða 307, 220 Hafnarfirði:Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í þessu vinsæla og vel staðsetta fjölbýli (lyftuhús) sem er fyrir 60 ára og eldri. Birt stærð eignar er 61,5 fm. Á hæðinni er sameiginleg setustofa með nýjum teppum og eigninni fylgir afnot af sameiginlegri geymslu á hæðinni. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri / hol, eldhús, geymslu / búr, stofu / borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi.
Skipulag eignar:Anddyri / hol: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp, dyrasími með myndavél, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi út á vestur svalir (leyfi er fyrir því að byggja yfir svalirnar), parket á gólfi.
Eldhús: Viðarinnrétting, borðkrókur, eldavél og vifta, flísar milli skápa, parket á gólfi.
Geymsla / búr: Inn af eldhúsi, með hvítum skápum og vinnuborði, rými er fyrir ísskáp, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með þremur fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Rúmgott með hvítri innréttingu, hvítur veggskápur, sturtuklefi, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, linoleum dúkur á gólfi.
Geymsla: Sameiginleg geymsla er á hæðinni (framan við íbúð) þar sem íbúðin á aðstöðu.
Sameign: Sameiginleg setustofa er á hæðinni.
Lóð: 8275,5 fm sameiginleg lóð fyrir Sólvangsveg 1-3. Við Sólvangsveg 3 eru 24 sameiginleg bílastæði.
Húsið: Húsið er er steinsteypt sambýlishús klætt með Stenex plötum og er byggt 1995. Húsið er kjallari og fjórar hæðir ásamt risi. Í húsinu eru samtals 27 íbúðir.
Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða eign í vel staðsett fjölbýlishúsi sem ætlað er fyrir 60 ára og eldri - Heilsugæsla og Sólvangur hjúkrunarheimili eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar og sýningu á eigninni annast Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 893-3276 eða með tölvupósti: holmar@helgafellfasteignasala.is.