Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftufjölbýli fyrir 67 ára og eldri í miðbæ Reykjavíkur. Opið eldhús/stofa, forstofugangur, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Vestursvalir. Sérgeymsla í sameign. Mikil og björt sameign með glerþaki. Félagsmiðstöð fyrir eldri borgara og heilsugæsla í húsinu. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson, lgfs. Í síma 897-0634 eða hjá throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofugangur: Með fataskáp.
Eldhús/stofa/borðstofa: Innrétting á einum vegg með ísskáp (getur fylgt). Stofa með útgengi út á svalir í vestur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu og baðkari og innréttingu við vask. Þvottavél (getur fylgt).
Svefnherbergi: Mjög rúmgott.
Gólfefni: Viðarparket á öllum gólfum nema á baðherbergi.
Sameign og sér geymsla: Sér geymsla er í sameign. Þá er bílakjallari undir húsinu þar sem hægt er að leigja stæði. Félagsmiðstöð með alls konar starfsemi fyrir eldri borgara er í húsinu ásamt heilsugæslu. Virkilega huggulegur stór bakgarður með glerþaki með bekkjum. Á jarðhæð hússins er heilsugæsla og er íbúðin á 2. hæð. Fyrir framan íbúðina er sameiginleg setustofa sem íbúar nota gjarnan sem kaffistofu, handavinnu og blaðalestur.
Virkilega fín 2ja herbergja íbúð fyrir 67 ára og eldri á frábærum stað í göngufæri við miðbæinn og alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson, lgfs. Í síma 897-0634 eða hjá throstur@miklaborg.is Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 07/04/2021 | 41.000.000 kr. | 35.000.000 kr. | 66 m2 | 530.303 kr. | Já |
| 07/03/2014 | 21.550.000 kr. | 22.500.000 kr. | 66 m2 | 340.909 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 80,9 | 105 | ||
105 | 82,8 | 86 | ||
105 | 59 | 56,5 | ||
101 | 112,4 | Tilboð | ||
101 | 117,5 | Tilboð | ||
221 | 80 | 68,5 |