Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 24, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Björt og vel skipulögð fjögurra til fimm herbergja íbúð á efstu hæð til vinstri ásamt sérgeymslu á jarðhæð.
Birt stærð séreignarinnar er 115,4 fm., þar af 5,6 fm. sérgeymsla. Fjölbýlishúsið var byggt árið 1978.
Íbúðin er vel staðsett og stutt í ýmsa þjónustu s.s. í skóla og leikskóla, íþróttasvæði, íþróttahús, sundlaug, verslun o.fl.
Íbúðin skiptist í 4 herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Í íbúðinni þrjú parketlögð herbergi og öll með skápum. Aukaherbergi hefur verið stúkað af í stofu og eru þau því fjögur talsins. Veggurinn liggur á gúmmílista ofan á parketinu og er það því heilt undir honum. Svalahurð á vestursvalir frá hjónaherbergi.
Í eldhúsi er hvít nýleg innrétting með svartri borðplötu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofa er parketlögð. Svalahurð á vestursvalir frá stofu.
Skápar eru við gang.
Á baðherbergi er gólf flísalagt og hvít innrétting við vask. Handklæðaofn gengt vaki.
Í þvottahúsi er vaskaborð. Tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Inn af þvottahúsi er geymsla. Innréttingin er hvít með grárri borðplötu. Gluggi í þvottahúsi til suðurs.
Gluggar og svalahurðir að vestan hafa verið endurnýjaðar.
Stigagangur er snyrtilegur. Árið 2019 var lagt teppi á stigaganginn og hann málaður.
Garður er sameiginlegur.
Sérgeymsla, sameiginleg geymsla og sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
12/01/2024 | 33.100.000 kr. | 38.000.000 kr. | 114.6 m2 | 331.588 kr. | Já |
04/05/2021 | 23.100.000 kr. | 25.000.000 kr. | 114.6 m2 | 218.150 kr. | Já |
08/05/2015 | 13.050.000 kr. | 10.000.000 kr. | 114.6 m2 | 87.260 kr. | Nei |
13/06/2007 | 10.552.000 kr. | 10.500.000 kr. | 114.6 m2 | 91.623 kr. | Já |