Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Sigtún 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
91.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
819.475 kr./m2
Brunabótamat
45.000.000 kr.
Byggt 1948
Jarðhæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20192871
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynn mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í snyrtilegu fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík. Eignin er skráð 91,4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar eru allir fermetrar innan íbúðarinnar og skipulag gott.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar með talið er nýtt eldhús, gólfefni og gólfhiti í eldhúsi og forstofu, baðherbergi endurnýjað og skipt um glugga í íbúð. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a. verið endurnýjað þak, þakkantur, ytra byrði endursteinað ofl. Frábær staðsetning í jaðri Laugardalsins, stutt er í skóla og leikskóla, Laugardalslaugina, líkamsrækt og öflugt barna- og unglingastarf Þróttar.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fatahengi, flísum á gólfi og gólfhita.
Stofa björt og rúmgóð með vínylparketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2024, þar er mikið hirslupláss, tækjaskápur með rafmagni, innbyggð uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur, á gólfi er vínilparket og gólfhiti. 
Svefnherbergisálma er aðgreind með rúmgóðum gangi/holi með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Svefnherbergi með vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi.
Geymsla er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er í sameign hússins á hæð íbúðar.
Endurbætur innan íbúðar:
2025 Skipt um glugga íbúðarinnar
2024 Skipt um gólfefni: flísar á forstofu og baðherbergi, vínylparket á öðrum rýmum. Ný eldhúsinnrétting, nýir skápar í holi og hjónaherbergi, og gólfhiti lagður í forstofu og eldhús.
Viðhald á húsinu í gegnum árin:
2023 – Vatns- og frárennslislagnir yfirfarnar (endurnýjaðar 2005).
2022 – Þak hússins endurnýjað
2017 – Húsið tekið í gegn að utan með steypuviðgerð og endursteiningu, og þakkantur steyptur upp á nýtt. Stigagangur teppalagður og málaður.
2014 – Skólp og dren endurnýjað og garðurinn tekinn í gegn.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 38 - íbúð 117
Bílastæði
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Stefnisvogur 38 - íbúð 117
104 Reykjavík
94,6 m2
Fjölbýlishús
312
919 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Ásendi 14
Skoða eignina Ásendi 14
Ásendi 14
108 Reykjavík
106,2 m2
Fjölbýlishús
413
829 þ.kr./m2
88.000.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 3 - Íbúð nr. 309
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Stefnisvogur 3 - Íbúð nr. 309
104 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
413
879 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 46 - Íbúð nr. 401
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Stefnisvogur 46 - Íbúð nr. 401
104 Reykjavík
88,2 m2
Fjölbýlishús
211
1121 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin