Fasteignaleitin
Opið hús:14. okt. kl 17:00-18:00
Skráð 13. okt. 2026

Vefarastræti 7-9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
85.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
856.639 kr./m2
Brunabótamat
62.050.000 kr.
Byggt 2017
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23587172
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög falleg og vel skipulögð 85,1 fermetra þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi, afgirtri verönd og stæði í bílakjallara við Vefarastræti  7-9 í Mosfellsbæ. Vandaður frágangur með eikarparketi og eikarnnréttingum frá HTH. Eignin er skráð 85,1 fermeter í fasteignamati og er 5,3 fermetra geymsla innan íbúðar í þeirri tölu. Sérlega barnvæn staðsetning með skóla, leikskóla og ungbarnaleikskóla í stuttu göngufæri, en á lóðinni er mjög snyrtilegur garður með leiktækjum. Gott íþrótta og útivistarsvæði er í göngufæri. Helgafellslandið í Mosfellsbæ er í mikilli nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt er í fallegar gönguleiðir. Eign sem hentar vel fyrir hundaeigendur. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

Íbúðin:
Komið er inn í flísalagt forstofurými þar sem er fataskápur og falleg eikarlituð hilla yfir ofni, en rýmið er opið til stofu. Mjög fallegt eikarparket er á öllum meginrýmum eignarinnar, ásamt eikarlituðum innréttingum og hurðum, sem gefur eigninni mjög fallegt og hlýlegt yfirbragð. Alrýmið er rúmgott og bjart, með stórum glugga í átt að garði en einnig nýtur birtu frá stórum glugga í eldhúsi. Eldhús er með L-laga eikarinnréttingu með ljósri borðplötu, innbyggðri uppþvottavél og flísaplötum á milli skápa. Gengið er úr stofu út á 23 fermetra suðvestur verönd með skjólveggjum á þrjá vegu.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með þreföldum fataskáp og skemmtilegu niðurteknu lofti fyrir lýsingu sem setur mikinn svip á rýmið. Barnaherbergi er sömuleiðis rúmgott og með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, með gráum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Handklæðaofn, vegghengt salerni, göngusturta með glerskilrúmi, eikarlituð innrétting með plássi fyrir þvottavél og tengi fyrir þurrkara.
Geymsla innan íbúðar er rúmgóð en þar er hægt að vera með þurrkara
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Umhverfið: 
Vefarastræti 7-11 er sameiginleg lóð með tveimur aðskildum fjölbýlishúsum á tveimur og þremur hæðum auk einnar íbúðar á kjallarahæð og sameiginlegrar bílgeymslu. 35 íbúðir eru í húsunum. Í bílgeymslu eru 28 bílastæði. Á lóðinni norðanvert við húsið eru tíu bílastæði. Þar af eru tvö stæði sérmerkt hreyfihömluðum.
Aðgengi að íbúðunum er um tvö stigahús, inn í annað þeirra er gengið á vesturhlið og inn í hitt á norðurhlið. Auk þess eru sérinngangar á austurhlið og á jarðhæð norðurhliðar. Ein lyfta er í hvoru stigahúsi með aðgengi að hæðum, kjallara og bílgeymslu. Í kjallara eru bílastæði og inntaksrými veitna. Aðgengi að bílgeymslu í kjallara er um stigahúsin. Tvær stakstæðar hjóla- og vagnageymslur eru á lóð, ásamt stórum mjög snyrtilegum garði með leiktækjum.

Vönduð og falleg eign sem vert er að skoða, frábærlega staðsett fyrir fjölskyldu.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laufrimi 24
Efsta hæð
Skoða eignina Laufrimi 24
Laufrimi 24
112 Reykjavík
99,2 m2
Fjölbýlishús
513
745 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Bláhamrar 2
Skoða eignina Bláhamrar 2
Bláhamrar 2
112 Reykjavík
64,6 m2
Fjölbýlishús
211
Fasteignamat 50.150.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Brautarholt 20
Efsta hæð
Skoða eignina Brautarholt 20
Brautarholt 20
105 Reykjavík
77,2 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2C 311
Bílastæði
Vetrarbraut 2C 311
210 Garðabær
60,8 m2
Fjölbýlishús
211
1117 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin