***Eignin er seld með fyrirvara***
*HÚSIÐ ER MIKIÐ ENDURNÝJAÐ OG VIÐGERT AÐ UTAN*
*LAUS STRAX*
Lögheimili eignamiðlun kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. og efstu hæð. Eignin er samtals 71,5 fm. Laus strax.
Eignin skiptist í hol, stofu/borðstofu, herbergi, eldhús, baðherbergi og þvottaherbergi, ásamt sérgeymslu.
Endurnýjað og viðgert skv. uppl. seljanda: Sprautað var í sprungur utanhúss á grundvelli skýrslu/minnisblaðs frá júlí, 2023. Á árunum 2019-2020 var húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað járn á þaki ásamt rennum og niðurföllum, tréverk yfirfarið og málað að utan. Árið 2000 voru endurnýjaðir rafmagnsvírar og tenglar í íbúð. Nýlega var endurnýjað parket í stofu og holi. Nýlegir Danfoss kranar á ofnum. Íbúðin var máluð fyrir 3 árum. Frárennslislagnir voru fóðraðar undir húsi.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
Nánari lýsing: Í holi er innbyggður fataskápur án hurða og er þaðan innangengt í aðrar vistarverur. Stofa/borðstofa er með glugga í vestur og útsýni yfir garðinn. Í eldhúsi er hvít innrétting, flísar milli efri og neðri skápa, spanhelluborð, borðkrókur og getur uppþvottavél og ísskápur/frystir fylgt með. Í baðherbergi er baðkar, flísalagður sturtuklefi, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og flísar upp veggi. Þvottaherbergi, er innan íbúðar, með hillum og flísum upp veggi að glugga. Herbergi er með innbyggðum fataskáp og útgengt á vestursvalir. Parket er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi og eldhúsi þar sem eru flísar. Sérgeymsla með glugga og sameiginlegt þurrkherbergi með K. 24, er í kjallara.
Annað: Skv. fasteignayfirliti er íbúð 65,3 fm. og geymsla 6,2 fm., eða samtals 71,5 fm. Skipulagi íbúðar hefur verið breytt. Eignin hefur verið í útleigu undanfarin ár.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.