SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ* *ÖRSTUTT Á STRÖND* *STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU* *MÖGULEIKI Á STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*Nýjar, vel skipulagðar og flottar íbúðir á góðum stað rétt við ströndina í Santa Pola, fallegum spænskum strandbæ með sál og sjarma. Um er að ræða 42 íbúðir í nýju 5 hæða fjölbýlishúsi sem stendur í ca. 700 m fjarlægð frá ströndum Santa Pola. Flottur sundlaugargarður og græn svæði. Tvö/þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Hægt er að fá sér bílastæði í bílakjallara og geymslu gegn auka gjaldi. Einungis um 20 mín akstur suður frá Alicante. Stutt er í alla helstu þjónustu, miðbæ Santa Pola, úrval veitingastaða, fallega strönd og ótal góða golfvelli.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869
Nánari lýsing:Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi og er annað baðherbergið inn af hjónasvítu. Rúmgóð verönd og 30 fm sér garður sem snýr í vestur. Möguleiki á sér bílastæði í bílakjallara og geymslu gegn auka gjaldi. Fallegur sundlaugargarður. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Fjarstýrðar rafmagnsgardínur.
Alicante flugvöllur er í ca. 20 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 20 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Íbúð á jarðhæð, 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi - Verð frá 325.000 evrum + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.Íbúðirnar afhendast tilbúnar í júní 2028.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sér garður, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, geymsla,
Svæði: Costa Blanca, Santa Pola,