*Opið hús miðvikudaginn 5.ágúst kl 16:30-17:00*
SÉRINNGANGUR / SUÐUR SVALIR / SÉRMERKT BÍLASTÆÐI
Móeiður Svala og Miklaborg kynna í einkasölu: Afar fallega og vel skipulagða 79 fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi í litlu og snyrtilegu fjölbýli í fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Eignin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús, bjarta stofu með útgengi á suður svalir, rúmgott hol sem hentar vel sem sjónvarpshol eða skrifstofuaðstaða og sér geymslu innan íbúðar.
***Húsfélagið vel stætt og 2 ný hleðslustæði hafa einnig verið sett upp fyrir framan**
Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í: forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, hol, geymslu innan íbúðar og svalir.
Forstofa: Flísalögð með góðu plássi fyrir yfirhafnir og skó.
Stofa: Björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi og útgengi á suður svalir sem njóta sólar yfir allan daginn.
Eldhús: Opið inn í stofu með fallegri innréttingu.
Svefnherbergin: Eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi en hjónaherbergið er með góðum fataskápum.
Hol: Rúmgott og nýtist einstaklega vel sem sjónvarpshol, leiksvæði eða heimaskrifstofa.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu (nýtt gler), innréttingu við vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Innan íbúðar.
Í sameign er hjólageymsla og eigninni fylgja afnot af sérmerktu bílastæði.
***2 ný hleðslustæði hafa einnig verið sett upp fyrir framan**
Um er að ræða fjölskylduvæna staðsetningu í Grafarvogi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, þjónustu, íþróttasvæði og fallegar göngu- og hjólaleiðir.
Eign sem hentar einstaklega vel fyrir fyrstu kaupendur, ungar fjölskyldur eða þá sem leita að vel skipulagðri íbúð á vinsælum stað.
Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 27/01/2023 | 49.150.000 kr. | 54.000.000 kr. | 79.1 m2 | 682.680 kr. | Já |
| 27/09/2017 | 24.900.000 kr. | 36.000.000 kr. | 79.1 m2 | 455.120 kr. | Já |
| 22/07/2016 | 22.300.000 kr. | 28.500.000 kr. | 79.1 m2 | 360.303 kr. | Já |
| 17/09/2013 | 17.600.000 kr. | 21.700.000 kr. | 79.1 m2 | 274.336 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
112 | 79,1 | 69,5 | ||
200 | 98,7 | 79,5 | ||
200 | 87,6 | 69,8 | ||
221 | 90 | 74,9 | ||
105 | 92,3 | 99 | ||
105 | 73 | 84 |